Þýski ferða­maðurinn fundinn

Þýski ferða­maðurinn sem leitað var að í Flat­eyjar­dal er fundinn, sam­kvæmt upp­lýsingum frá björgunar­sveitum á svæðinu en mbl.is greindi fyrst frá. Engar upp­lýsingar fengust um á­stand mannsins en lögreglan á Norðurlandi Eystra greinir frá því að skömmu fyrir kl. 19:00 í kvöld fann áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar látna manneskju í svo kölluðum Skriðum austan Hvalvatnsfjarðar.

„Lögrglan telur líkur á að um sé að ræða aðila sem leitað hefur verið að í dag á þessu svæði. Það á hinsvegar eftir að staðfesta með formlegum hætti,“ segir í færslu lögreglunnar.

Lög­regla og björgunar­sveitir á Norður­landi eystra fengu í gær­kvöldi á­bendingu um bif­reið á er­lendum númerum, sem væri búin að standa ó­hreyfð í marga daga í Flat­eyjar­dal. Strax var hafist handa um eftir­grennslan eftir eig­andanum og kom í ljós að eig­andinn heitir Bernd Meyer og er frá Þýska­landi, fæddur 1947 og kom til landsins í júní.

Að­gerðar­stjórn vegna þessa máls var virkjuð á Húsa­vík og björgunar­sveitir af Norður­landi eystra boðaðar til leitar­starfa. Allt að 100 manns komu að leitinni. Leitað var með göngu­hópum, drónum og bátum.