Þýska landsliðið tók krappa hægri beygju í háloftunum - „Öllum líður vel“

Þýska landsliðið brunaði til síns heima strax eftir sigurleikinn í Laugardal. Stigu stórstjörnurnar upp í Boeing 737-522 og var lagt af stað skömmu eftir miðnætti. Var stefnan sett á Frankfurt. Flugið gekk þó ekki áfallalaust fyrir sig því þegar komið var yfir Skotland tók vélin skyndilega snögga hægri beygju og lenti í Edinborg.

Þýska knattspyrnusambandið tísti svo í morgun að öryggið hefði verið sett á oddinn. Ákveðið hefði verið að stoppa í Edinborg til að láta kíkja aðeins á vélina. Skömmu síðar tísti sambandið aftur og sagði; „Öllum líður vel. Bíðum í flugstöðinni eftir frekari fregnum.“

Þýska blaðið Bild greinir frá því að kóðinn 7700 hafi verið sendur frá vélinni sem þýðir að vélin fær strax þjónustu. Yfirleitt er þetta einhverskonar vélarbilun eða álíka vandamál.