Þúsundir þakka Þórólfi á Facebook: „Ég dáist að úthaldi þínu og dugnaði“

Svo virðist sem að jólandinn sé kominn yfir fólk á Facebook en yfir þúsund manns hafa deilt jólakveðju í opnu bréfi til Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnalæknis.

„Kæri Þór­ólfur. Mig langar til þess að óska þér gleði­legrar há­tíðar og góðra daga um jólin með inni­legri von um góða hvíld og frið frá amstri og streitu,“ segir í upphafi bréfsins sem netverjar keppast nú við að deila á veggnum sínum.

„Það sem ég dáist að út­haldi þínu og dugnaði. Og hvernig þú tekst á við ógn veirunnar af æðru­leysi og ekki minna hve þraut­seigur þú ert þegar gagn­rýni þeirra mis­vitru bylur á þér. Og hvernig þér tekst að vera alltaf með nýjustu upp­lýsingarnar um veiruna ógnar­legu. Mest dáist ég þó að því hvernig þú hefur tekist á við efann, þegar enginn veit hvað er réttast og eina leiðin er að taka þetta í skrefum, jafn­vel fram og til baka,“ heldur opna bréfið á­fram sem allir deila nú og gera #Takk­Þór­ólfur.

Hægt er að sjá bréfið í heild hér að neðan.