Þurftu að hætta við lendingu í Keflavík á síðustu stundu: Önnur vél á brautinni

Flugvél sem var við það að lenda á Keflavíkurflugvelli síðastliðinn miðvikudag þurfti að hætta við á síðustu stundu vegna þess að önnur vél var á flugbrautinni.

Vélin sem var frá Icelandair var að koma frá Munchen.

Víkurfréttir greindi fyrst frá þessu og hafði það staðfest frá Guðna Sigurðssyni, upplýsingafulltrúa Icelandair. Fram kemur að veðuraðstæður hafi ekki verið góðar á þessum tímapunkti.

Víkurfréttir greindu frá því í kjölfarið að málið væri komið á borð rannsóknarnefndar samgönguslysa. Auk þess verði það rannsakað hjá Isavia Það staðfesti Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia.