Andrea Sigurðardóttir greinir frá leiðinlegu atviki á twitter í gær þar sem litla frænda hennar var neitað um inngöngu í strætó.
„Ekki gleyma að senda börnin með vegabréf í Strætó,“ skrifar Andrea og merkir þár Strætó Bs. í færslunni.
„Bróðir minn þurfti að fara úr vinnu til að sækja son sinn og vin hans því að strætóbílstjórinn trúði ekki að þeir væru yngri en 12 ára og neitaði þeim um far. Svo eru sumir hissa að fólk treysti ekki á þessa þjónustu,“ skrifar Andrea.
Almannatengillinn Karen Kjartansdóttir, spyr hvaða skilaboð séu bílstjórarnir að fá? Og hvort börnin eiga ekki að njóta vafans?
Andrea svarar um hæl að henni finnist þetta mjög sérstakt. „Það er varla hægt að ætlast til að börnin séu með skilríki á sér, enda vegabréf einu skilríki flestra 10-11 ára barna og þeim tæpast treystandi til að vera að flækjast með þau á milli tómstunda og heimilis.“
Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata, svara Andreu og segir þetta sér hrikalegt að heyra. „Vil bara segja að við ræddum þetta á stjórnarfundi í dag og skv. Strætó er það 100% stefnan að börnum sé ekki vísað frá þó einhver vafi sé um aldurinn. Það voru líka skýr skilaboð frá stjórn Strætó til fyrirtækisins að þetta eigi ekki að gerast,“ skrifar Alexandra.
Hrikalegt að heyra. Vil bara segja að við ræddum þetta á stjórnarfundi í dag og skv. Strætó er það 100% stefnan að börnum sé ekki vísað frá þó einhver vafi sé um aldurinn. Það voru líka skýr skilaboð frá stjórn Strætó til fyrirtækisins að þetta eigi ekki að gerast.
— Alexandra Briem (@OfurAlex) August 15, 2022
Á vef Fréttablaðsins segir upplýsingafulltrúi Strætó að málið hafi verið rætt og að það verði ítrekað við bílstjóra að börn eigi að njóta vafans. Nánar hér.