„Þú þarft ekki að leita víðar er slag­orðið okkar hér í Mela­búðinni sem við gleymdum sjálf“

Ó­prúttnir aðilar krotuðu á veggi Mela­búðarinnar. Þegar uppi var staðið var besta efnið gegn krotinu að finna í búðinni sjálfri eins og fram kemur í stór­skemmti­legri færslu frá búðinni.

„Það var ekki skemmti­legt að koma til vinnu í morgun og sjá veggja­krot víða á veggjum búðarinnar,“ segir í færslunni.

Búðar­rek­endur hlupu til og keyptu hreinsi­efni, málningu og pensla til að þrífa og mála yfir. „En þegar upp var staðið fékkst besta efnið hjá okkur sjálfum hér í Mela­búðinni og heitir það Fix (sjá mynd) svona ef fleiri þurfa að þrífa á­líka hjá sér. Þú þarft ekki að leita víðar er slag­orðið okkar hér í Mela­búðinni sem við gleymdum sjálf.“