Þú kemst aftur í ræktina í næstu viku en verður að fara í sturtu heima

Fjölda­tak­markanir verða 20 manns, heilsu- og líkams­ræktar­stöðvum verður gert kleift að hefja starf­semi á ný en með ströngum skil­yrðum og skíða­svæðunum sömu­leiðis. Í­þrótta­starf barna og full­orðinna verður heimilað að upp­fylltum skil­yrðum og sömu­leiðis í­þrótta­keppnir án á­horf­enda.

Fjölda­mörk í sviðs­listum verða aukin þannig að 50 manns mega vera á sviði og í sal 100 full­orðnir og 100 börn. Sama gildir um aðra menningar­við­burði.

Þetta er megin­efni breyttra reglna um sam­komu­tak­markanir sem heil­brigðis­ráð­herra hefur á­kveðið í sam­ræmi við til­lögur sótt­varna­læknis og kynntar voru á fundi ríkis­stjórnar í dag. Á­formaðar breytingarnar taka gildi 13. janúar og gilda til 17. febrúar næst­komandi.

Sótt­varna­læknir leggur til þessar til­slakanir þar sem vel hafi gengið að sporna gegn út­breiðslu CO­VID-19 hér á landi. Hann bendir á að víða er­lendis sé far­aldurinn í mikilli upp­sveiflu, meðal annars vegna nýs af­brigðis veirunnar sem til þessa hafi ekki náðst að breiðast út hér­lendis. Sótt­varna­læknir setur til­lögur sínar því fram með fyrir­vara um að þróun far­aldursins snúist ekki á verri veg.

Helstu breytingar eru þessar:

  • Al­mennar fjölda­tak­markanir verða 20 manns.
  • Verslanir: Gerð er sú breyting að í stað nú­gildandi reglu sem heimilar 5 við­skipta­vini á hverja 10m² er gert ráð fyrir einum við­skipta­vini á hverja 4m² en þó ekki fleiri en 100 við­skipta­vinum í rými að há­marki.
  • Heilsu- og líkams­ræktar­stöðvar: Starf­semi verður heimil með ströngum skil­yrðum. Fjöldi gesta má að há­marki vera helmingur þess sem kveðið er á um í starfs­leyfi, eða helmingur þess sem búnings­að­staða gerir ráð fyrir ef gesta­fjölda er ekki getið í starfs­leyfi. Einungis er leyfi­legt að halda skipu­lagða hóp­tíma þar sem há­marks­fjöldi í hverjum hópi eru 20 manns og gestir í hvern tíma skráðir. Búnings­klefar skulu vera lokaðir. Börn fædd 2005 og síðar eru ekki talin með í gesta­fjölda. Sótt­varna­læknir mun setja fram ýtar­legar leið­beiningar um sótt­varnir á heilsu- og líkams­ræktar­stöðvum.
  • Í­þrótta­æfingar: Í­þrótta­æfingar barna og full­orðinna verða heimilar með og án snertingar innan- og utan­dyra. Ekki mega vera fleiri en 50 manns í rými.
  • Í­þrótta­keppnir: Í­þrótta­keppnir barna og full­orðinna verða heimilar en án á­horf­enda.
  • Skíða­svæði: Skíða­svæðum verður heimilt að hafa opið með tak­mörkunum sam­kvæmt reglu 4 í út­gefnum reglum skíða­svæðanna í landinu. Í skíða­lyftum skal tryggt að þeir sem eru einir á ferð þurfi ekki að deila lyftu­stól með öðrum, halda skal tveggja metra ná­lægðar­mörk og sömu reglur gilda um grímu­notkun og annars staðar.
  • Sviðs­listir, bíó­sýningar og aðrir menningar­við­burðir: Á sviði mega vera allt að 50 manns á æfingum og sýningum. And­lits­grímur skulu notaðar eins og kostur er og tveggja metra ná­lægðar­tak­mörkun virt eftir föngum. Sitjandi gestir í sal mega vera allt að 100 full­orðnir og 100 börn fædd 2005 og síðar. Gestir skulu sitja í sætum sem skráð eru á nafn og full­orðnir eiga að bera grímu.