Þú ert svona lengi að nýja gosinu

Það tekur tæpa þrjá tíma að ganga að nýja gosinu fyrir heilbrigðan einstakling. Þetta segir göngugarpurinn Geir Finnsson í samtali við Fréttablaðið.

Geir gekk að nýja gosinu í gær. Hann segist hafa gengið framhjá gamla gosinu og að það bætist við einn og hálfur tími við gönguleiðina að gamla gosinu í Geldingadölum. Því sé gangan þriggja tíma verkefni, en ekki eins og hálfs líkt og í fyrra.

„Ég hlýddi ekki Víði,“ segir Geir og vísar í slag­orðið „Ég hlýði Víði“ sem varð vin­sælt í heims­far­aldri Co­vid-19, en Víðir Reynis­son, yfir­lög­reglu­þjónn al­manna­varna­deildar Ríkis­lög­reglu­stjóra, varaði í gær fólki við að fara að gos­stöðvunum strax. Unnið sé að því að gera að­gengi að þeim betra.

„Við vorum komnir að upp­hafi göngu­leiðarinnar í kringum ellefu leitið í gær­kvöldi og vorum komnir að sjálfu gosinu upp úr klukkan tvö,“ segir Geir í samtali við Fréttablaðið.

Geir segir að þrátt fyrir að þeir vinirnir hafi lagt seint af stað hafi fjöldi fólks verið við gos­stöðvarnar. „Þetta var al­vöru úti­há­tíðar­stemning,“ segir hann.

Viðtalið við Geir í heild sinni á vef Fréttablaðsins.