Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður ráðherra og fyrrverandi þingmaður, birti fyrr í dag færslu á Facebook síðu sinni þar sem hann gefur til kynna að rithöfundurinn Andri Snær Magnússon sé fasisti.
Andri Snær virtist ekki sáttur um að nafn hans hafi verið nefnt í færslunni.
Brynjar sagði frá dvöl sinni á eyjunni Mallorca á Spáni. Þar segir hann hitann vera á milli 29 til 33 gráður. En hitinn sé ekki um 40 gráður eins og fréttastofur víða um heim hafa skrifað um.
„Hér eru menn ekki áhyggjufullir að heyra yfir loftslagsbreytingum eða Glóbal Warming. Þeir hafa heldur engan Andra Snæ, eða hvað hann heitir sá ágæti maður, til að leiðbeina sér. Þó eru þeir alvanir fasisma frá tíma Francosar, sem réði hér fyrir ekki svo löngu síðan,“ skrifaði Brynjar.
„Ég skil ekki alveg. Þú ert opinber embættismaður, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra. Ég er rithöfundur úti í bæ. Af hverju ertu að tengja mig við svona stjórnmálastefnu?“ skrifar Andri Snær.
„Hvar hef ég sett fram viðhorf sem eru í ætt við þessa stjórnmálastefnu? Er þetta einhverskonar grín? Þú ert í valdastöðu. Ég á von á því að þú beitir áhrifum þínum innan kerfis? Er þetta viðvörun til mín og í tengslum við hvað er hún sett fram?“ segir Andri Snær enn frekar.
Hann bendir síðan á almennar siðareglur starfsmanna ríkisins. En þar segir meðal annars að ríkisstarfsmönnum beri að koma fram við borgara af háttvísi og virðingu.
Sjá má færslu Brynjars hér að neðan: