Þröstur ósáttur: „Það var strax hringt í lög­regluna áður en það var rætt við okkur“

„Það var strax hringt í lög­regluna áður en það var rætt við okkur. Það finnst okkur mjög ó­eðli­legt,“ segir Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri í samtali við Fréttablaðið í dag. Lögregla var kölluð til um helgina vegna slóðagerðar Skógræktarinnar í Dragafelli og gæti farið svo að málið verði kært.

Í frétt Fréttablaðsins segir Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir, skipulagsfulltrúi Skorradalshrepps, að hún hafi fengið nokkrar ábendingar síðdegis á laugardag um að verið væri að ryðja slóðina. Var það hún sem hringdi á lögregluna og óskaði eftir því að framkvæmdin yrði stöðvuð.

„Þetta er mjög sýnilegt og margir sem taka eftir þessu,“ segir hún við Fréttablaðið. Bendir hún á að Skóg­ræktin hafi ekki sótt um neitt fram­kvæmda­leyfi fyrir þessu og það megi ekki raska um­hverfinu á þennan hátt.

„Þá er þetta ó­leyfis­fram­kvæmd,“ segir hún. Það sé hins vegar í höndum hrepps­nefndar að stað­festa stöðvunina og taka á­kvörðun um að kæra málið til lög­reglu en ekki liggur fyrir hvenær nefndin kemur saman.

Þröstur bendir aftur á móti á að Skógræktin sé alltaf að leggja slóðir og telur hann að ekki sé um óleyfisframkvæmd að ræða. Þannig eigi ríkið landið og Skógræktin hafi umsjón með því.

„Það er al­vana­legt að leggja svona slóðir til að komast að landi. Full­kom­lega eðlilegur hluti af skóg­ræktar­fram­kvæmd og það er fullt af svona slóðum í skóg­ræktar­löndum Skóg­ræktarinnar, hjá skóg­ræktar­fé­lögum og skóg­ræktar­bændum,“ segir Þröstur og bætir við að ekki sé um stóra framkvæmdin að ræða og eins og vaninn sé verði sáð í sárið þegar notkun slóðarinnar verði hætt.