Þröstur Ólafsson, hagfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri Dagsbrúnar, lenti illa í því þegar hann heimsótti Sundhöllina í gærmorgun.
Þröstur fer í sund flesta daga klukkan 06:30 en ekki vildi betur til en svo að hann rak höfuðið í listaverk sem búið er að koma fyrir í anddyri Sundhallarinnar þegar hann var á leið inn.
„Þegar ég hafði lagt bílnum gekk ég á átt að innganginum, þegar ég skyndilega stakkst á hausinn,“ sagði hann í færslu á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi.
„Hafði rekið mig á kassalaga listaverk sem komið hafði verið fyrir skáhallt gegn innganginum í Sundhöllina. Þessir kubbalaga ferhyrningar eru brúnahvassir og skarpir til hornanna. Ég gekk útúr Slysó með 14 spor frá kjálka og niður á háls. Segið svo að listaverk geti ekki verið aggressív.“
Þröstur ræddi við Fréttablaðið í gærkvöldi og þá var hann nokkuð brattur þrátt fyrir það sem á undan hafði gengið.
„Ég finn ennþá fyrir þessu, enda talsvert af sárum,“ sagði hann meðal annars. Þröstur er ekki viss hvaðan listaverkið kemur enda var hann lítið að velta því fyrir sér eftir slysið í gærmorgun.
„Ég þekki ekki listaverkið, en þetta voru einhverskonar stólar sem ég tók ekki betur eftir en að ég féll um þá. Það var svo mikið myrkur og rigning að ég sá þá illa. Þetta er samt búið að vera þarna í svona tvo mánuði,“ segir Þröstur og heldur áfram:
„Það eru mjög hvassir oddar á þessu, þannig þegar maður dettur á þetta er maður strax búinn að meiða sig,“ segir Þröstur um atvikið.