Þröstur Emilsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri ADHD-samtakanna, hefur verið dæmdur í 10 mánaða fangelsi fyrir fjárdrátt, umboðssvik og peningaþvætti í starfi sínu sem framkvæmdastjóri samtakanna.
Dómur féll í málinu í Héraðsdómi Reykjaness í dag og var Þröstur sem fyrr segir dæmdur í 10 mánaða fangelsi. Sjö mánuðir eru skilorðsbundnir og því þarf Þröstur að sitja inn í þrjá mánuði. Þá var hann dæmdur til að greiða samtökunum 9,2 milljónir króna.
Fyrst var greint frá málinu í júní 2018 en þá kom tilkynning um að Þresti hefði verið vikið frá störfum sem framkvæmdastjóri samtakanna. Nokkrum dögum síðar greindi RÚV frá því að hann hefði verið kærður til lögreglu vegna gruns um fjármálamisferli og var málið kært til lögreglu.
Samkvæmt ákæru játaði Þröstur að hafa dregið sér fjármuni ADHD-samtakanna, samtals rúmlega sjö milljónir króna í 50 tilvikum, á tímabilinu 30. júlí til og með 26. maí 2018, með því debetkorti, greiðslu reikninga í eigin þágu, veitingu styrks og með millifærslum af bankareikningum samtakanna yfir á sinn persónulega reikning.
Í ákæru kemur meðal annars fram að hann hefði greitt 131.999 krónur með debetkorti í verslun Símans í Ármúla í apríl 2017. Þá greiddi hann rúmar 100 þúsund krónur í verslun Duty Free í júlí 2017. Þá var hann ákærður fyrir fjölmargar millifærslur yfir á eigin reikning. Þá veitti hann Viðreisn í Hafnarfirði 100 þúsund króna styrk með millifærslu af reikningi samtakanna í desember 2017.
Auk þess var hann ákærður fyrir að nota kreditkort félagsins, sem eingöngu átti að nota til að greiða útgjöld sem tengdust starfsemi samtakanna, til eigin nota. Í sundurliðun sem birt er með dómnum sést að hann keypti meðal annars tannlæknaþjónustu, leigubílaakstur, lottó. Þá virðist hann hafa verið með áskrift sína að Spotify og Reebok Fitness á umræddu kreditkorti. Þá kemur fram að tæplega 120 þúsund krónur hafi farið í vefverslun Vínbúðarinnar.
Í dómi kemur fram að Þröstur hafi játað sakargiftir og var það virt honum til málsbóta. Fangelsisdómurinn er skilorðsbundinn til þriggja ára.