Þrjú smit af völdum COVID-19 greindust hér á landi við landamæraskimun í gær. Tekin 1.413 sýni á landamærunum sem er það mesta á einum degi síðan farið var í skipulagða skimun hjá einstaklingum sem koma til landsins. Í gær var greint frá einu smiti við landamæraskimun.
Samtals hafa greinst 14 smit við landamæraskimun síðan hafist var handa við að skima þann 15. júní síðastliðinn. Í mörgum tilfellum var um að ræða gömul og óvirk smit en ekki liggur fyrir hvort það eigi við um þau smit sem greindust á landinu í gær.
Það mun þó væntanlega koma í ljós í dag þegar upplýsingafundur almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra fer fram. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, Páll Þórhallsson, verkefnisstjóri í forsætisráðuneytinu og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn munu þar fara yfir stöðu mála varðandi opnun landamæra og COVID-19 hér á landi.