Þrjátíuþúsund fyrir nóttina í Subaru Legacy: „Ég held að þetta sé ekki dýrt verð“

Verð á Airbnb-leigu í Subaru Legacy-bíl á Íslandi kostar um 30 þúsund krónur. Það verð á við um nóttina.

DV greinir frá þessu, en í frétt miðilsins segir að umræddur bíll komi frá bílaleigunni Black Sheep Campers, sem er rekin af bræðrunum Ingimundi Sverri og Stefáni Þór Sigfússonum, en þeir svöruðu fyrir verðlagið.

„Ef þú spáir í því þá er þetta náttúrulega 4×4 bíll fyrir það fyrsta og það er allt innifalið. Fólk fær allt, í rauninni eina sem það þarf að gera er að koma með hlý föt, þá geta þau bara eldað sér mat og það er allt innifalið. Þannig við erum ekki með neinn svona falinn kostnað eins og flestar bílaleigur eru með. Það er ekkert auka, það er ótakmörkuð keyrsla, svefnpokar og allt fylgir með. Þegar þú leigir svona bíla hjá flestöllum öðrum þá þarftu að bæta við,“ er haft eftir Ingimundi

Þá segjast þeir einfaldlega fylgja verðlagningu í þjóðfélaginu og segja að nú sé rekstrarkostnaður er orðinn afskaplega dýr.

„Maður vill líka vera sanngjarn, ég tel að við séum með mjög samkeppnishæf verð. Ég held að þetta sé ekki dýrt verð sem við erum með, eins og miðað við þessa sendiferðabíla. Það eru líka allt öðruvísi bílar, það eru bara sendiferðabílar, beinskiptir,“ segir Ingimundur.

Hægt er að lesa nánar um málið á vef DV.