Þrjár konur segja Auður hafi aldrei beðist af­sökunar: „Ég veit ná­­kvæm­­lega hvað gerðist“

Þær Thelma Tryggva­dóttir, Ýr Guð­john­sen og Katla Ómars­dóttir bera í við­tali í þættinum Eigin konur að Auðunn Lúthers­son betur þekktur sem tón­listar­maðurinn Auður hafi brotið gegn þeim kyn­ferðis­lega.

Þetta kemur fram í frétt Stundarinnar sem Edda Falak, þátta­stjórnandi Eigin Konur, skrifar.

Tón­listar­maðurinn Auður var til við­tals í Ís­land í dag í apríl þar sem hann viður­kenndi að hafa „farið yfir mörk“ í sam­skiptum sínum við konur. Konurnar þrjár í við­tali hjá Eddu lýsa „á­gengni og meiðandi“ fram­komu sem Auður hefur aldrei axlað á­byrgð á.

Fyrstu á­sakanir á hendur Auðuns árið 2021 er ein kona hvað hann ógnandi, segir í frétt Stundarinnar. Auðunn sendi frá sér yfir­lýsingu þar sem hann viður­kenndi að hafa farið yfir mörk konu. Í kjöl­farið steig önnur kona fram og sagði hann hefði brotið á sér og sú þriðja sagði hann hafa látið sig gera hluti sem hún vildi ekki.

„Sögunum fjölgaði og þær urðu al­var­legri. Sumar hafa hvorki verið sagðar af þol­endum né verið sann­reyndar. Sögur af byrlunum, þöggunar­samningum og frelsis­sviptingum. Sjálfur hefur Auðunn bent á að margt sem um hann sé sagt sé hreinn og klár upp­spuni. Staða hans er því flóknari en í mörgum þessara mála. Hann hefur beðið um að vera dæmdur af gjörðum sínum, en ekki því sem er ó­satt. „Það er í grunninn munur á því að trúa orð­rómum og að trúa þol­endum. Ég get ekki tekið á­byrgð á því sem er ó­satt,“ sagði hann.

Í umfjöllun Stundarinnar segja konurnar þrjár frá viðbrögðum sínum við Ísland í dag þættinum og gagnrýna harðlega þann stuðning sem Auður fékk eftir þáttinn. Þær segjast vita til þess að hann hafi brotið á fleiri konum og lýsa ágengri hegðun hans gagnvart sér. Þá segja þær sárt að sjá tónlistarmenn eins og Bubba og Jón Jónsson gefa nú út lög með honum á ný.

Hægt er að lesa frétt Stundarinnar í heild sinni hér.