Þrír sjúklingar létust á síðasta sólarhring á Landspítala vegna Covid-19. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birtist á vef Landspítalans. „Aðstandendum er vottuð samúð,“ segir í tilkynningunni.
Ekki kemur fram á hvaða aldri hinir látnu voru en alls hafa 23 látist í faraldrinum hér á landi.
Í gær voru 80 einstaklingar á sjúkrahúsi vegna veirunnar og fjórir á gjörgæslu.