Þriggja barna móðir birtir opið bréf til leik­skóla­kennara: „Ég finn hjá mér djúpa þörf fyrir að segja ...“

Björg Þórs­dóttir, tón­mennta­kennari og þriggja barna móðir, birtir opið bréf til leik­skóla­kennara í til­efni þess að í haust lýkur yngsta dóttir hennar leik­skóla­göngu. Björg segir að þá sé á­kveðnum kafla í bók fjöl­skyldunnar lokið.

„Því fylgja blendnar til­finningar, enda hefur margt gerst á þessum árum; margt sem maður myndi vilja endur­taka og annað ekki. En ég finn hjá mér djúpa þörf fyrir að segja takk,“ skrifar Björg í grein áVísi.

„Takk, kæru leik­skóla­kennarar og starfs­fólk leik­skólanna sem dætur mínar hafa verið á.

Takk fyrir að kyssa á bágtið.

Takk fyrir að kynna koppinn.

Takk fyrir að syngja.

Takk fyrir að lesa.

Takk fyrir að segja sögur.

Takk fyrir að hlusta á þeirra sögur.

Takk fyrir að hjálpa okkur að finna út úr þessu með mjólkur­ó­þolið.

Takk fyrir að muna eftir því að frændi stelpnanna átti stíg­vélin á undan þeim og þess vegna voru þau ekki rétt merkt.

Takk fyrir að minna okkur á að panta nafna­lím­miða.

Takk fyrir allar sögurnar og myndirnar af stelpunum.

Takk fyrir að skrifa niður það sem þær höfðu að segja.

Takk fyrir að bjóða okkur í kaffi, þegar það mátti.

Takk fyrir að lána polla­galla þegar við gleymdum honum heima.

Takk fyrir að eiga auka föt, þegar auka­fata-kassinn var tómur.

Takk fyrir að sitja á gólfinu með þeim.

Takk fyrir renna upp og setja yfir og teygjuna undir.

Takk fyrir að setja teygju í hárið.

Takk fyrir að kenna rétt grip á liti og skæri.

Takk fyrir að fylgjast með orða­forðanum.

Takk fyrir að standa vaktina í co­vid-á­standinu!

Takk fyrir að vera lausnar­miðuð, hug­mynda­rík og harð­dug­leg.

Takk fyrir að finna leiðir í myglu, mann­eklu og mót­læti.

Takk fyrir að vera enn­þá á leik­skólanum með mikil­vægasta fólkinu, börnunum okkar.

Þið eigið allt það besta skilið,“ skrifar Björg.