Þrí­eykið segir frá al­var­legum hótunum í far­aldrinum: „Ég hefði ekki átt að sýna eigin­konunni þetta“

Þrí­eykinu svo­kallaða í Co­vid-far­aldrinum hér á landi bárust al­var­legar hótanir þegar sótt­varnar­að­gerðir hér á landi stóðu sem hæst. Fjallað var um þetta í sjötta þættinum af Stormi sem sýndur var á RÚV í gær­kvöldi, en Fréttablaðið greinir frá.

Víðir Reynis­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá al­manna­varna­deild Ríkis­lög­reglu­stjóra, hafði meðal annars orð á því að hann hefði á­hyggjur af því að verða hrein­lega skotinn í gegnum eld­hús­gluggann heima hjá sér og Þór­ólfur Guðna­son, þá­verandi sótt­varna­læknir, viðraði sömu á­hyggjur.

Vaknaði um miðja nótt

Heimili Víðis, Þór­ólfs og Ölmu Möller land­læknis voru vöktuð og voru þau með kerfi sem var bein­tengt lög­reglu. Þór­ólfur sagði meðal annars að í eitt skiptið hefði hann vaknað um miðja nótt við sím­tal frá lög­reglu og voru þá sér­sveitar­menn með hríð­skota­byssur og vasa­ljós í garðinum.

Þór­ólfur sýndi einnig dæmi um skila­boð sem hann fékk í gegnum Face­book.

„Drullastu til að opna líkams­ræktar,“ sagði í einu og þá birtist annað þar sem stóð: „Þú ert nu meiri við­bjóðurinn, trúi ekki að þú sért það besta sem Ís­land getur boðið á þessum tíma. Allt sem þú segir er nú meiri fkn drullan.“

Þá las Þór­ólfur annað skeyti þar sem stóð: „Skíta­hrappurinn þinn. Hvernig dettur þér í hug að loka landinu, litli skíturinn þinn? Settu það á kassann að það vilja fjöru­tíu sex­tán ára krakkar lemja þig.“ Þór­ólfur sagði að í þessum skila­boðum hefði síma­númer hans einnig birst, sem og heimilis­fang og nöfn sona hans.

„Svo er hérna: „Fokking leður­homma­draslið þitt. Dreptu þig. Eina sem ég vil er að fara á skíði.“,“ var dæmi um annað skila­boð sem Þór­ólfur las upp.

Sá eftir að hafa sýnt henni skilaboðin

Þór­ólfur sagðist hafa asnast til að sýna eigin­konu sinni skila­boðin og eðli málsins sam­kvæmt hafi henni brugðið. „Ég hefði ekki átt að sýna henni þetta,“ sagði Þór­ólfur.

Þá var rætt við Söru Haf­steins­dóttur, eigin­konu Þór­ólfs, sem sagði að sím­tölin hefðu orðið ansi þreytandi á sínum tíma. Hún hafi stöðugt þurft að svara fólki þannig að hún ynni ekki hjá land­læknis­em­bættinu og gæti ekki bjargað fólki úr sótt­kví. „Það endaði með því að við sögðum símanum upp.“

Í þættinum var svo vísað í fréttir af ó­hugnan­legum skot­á­rásum, til dæmis á bif­reið Dags B. Eggerts­sonar borgar­stjóra. „Svo þegar maður sér svona fréttir þar sem ein­hver bein­línis skýtur á glugga og bíla þá auð­vitað er manni ekki alveg sama,“ sagði Víðir meðal annars.