Fjölmargir hafa síðastliðnar vikur lagt leið sína að Reykjanesi til þess að bera eldgosið í Geldingadölum augum en frá því að gosið hófst föstudagskvöldið 19. mars síðastliðinn hefur tæplega þriðjungur landsmanna ýmist farið að gosinu eða séð bjarmann af gosinu með berum augum. Þetta kemur fram í Þjóðarpúls Gallup en niðurstöðurnar voru birtar af RÚV í kvöld.
Þegar könnunin var gerð vikuna 1. til 7. apríl síðastliðinn höfðu 16 prósent farið að gosinu, og svipað margir séð bjarmann, 68 prósent landsmanna, um 250.000 manns, hafa ekki séð gosið með berum augum.
Að því er kemur fram í frétt RÚV um málið höfðu 85 prósent landsmanna frétt af gosinu innan við þriggja klukkustunda frá því það hófst en tíðindin virðast hafa náð jafn hratt til allra, óháð aldri eða búsetu. Yngstu einstaklingarnir fréttu flestir af eldgosinu frá annarri manneskju á meðan eldri heyrðu af gosinu í sjónvarpi.
Þrátt fyrir að margir keppist nú við að sjá gosið með berum augum vekur það athygli að flestir sem svöruðu sögðust ekki ætla að gera sér leið að gosinu. Tæp 40 prósent sögðust muna gera sér ferð að gosinu, en fleiri ætli sér ekki að fara.