Þriðjungur allra fyrirspurna frá Birni Leví

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, ber ábyrgð á 31 prósent fyrirspurna sem berast heilbrigðisráðuneytinu. Ekki liggur fyrir hver heildarkostnaður ráðuneytisins við skrifleg svör við fyrirspurnum frá þingflokki Pírata á yfirstandandi löggjafarþingi var eða hversu margar vinnustundir starfsmanna hafa farið í að svara þeim.

Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðuneytisins við fyrirspurn Brynjars Níelssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um kostnað ráðuneytis við skrifleg svör við fyrirspurnum. Brynjar sendi sömu spurningu til allra ráðuneyta. Tilefnið var fyrirspurnargleði Björns Leví, en þingmennirnir tókust á í Bítinu á Bylgjunni í maí.

Sjá nánar: Brynjar og Björn Leví tókust á í Bítinu: „Þú verður að sýna ein­hverja hóf­semi“

Þar sagðist Björn Leví koma úr akademíunni þar sem hann er vanur að spyrja gagnrýnna spurninga:

„Ég er með eftir­lit með fram­kvæmda­valdinu og þegar ég fór inn í fjár­laga­nefnd fór ég að klóra mér í kollinum yfir gagn­sæi í opin­berum fjár­málum. Ef ég fæ ekki svör legg ég fram al­menna fyrir­spurn sem verður að svara,“

Þegar Brynjar var spurður hvort þetta væru ekki góð og gild rök sagði hann svo ekki vera, þvert á móti.

„Nei, talandi um fjár­laga­nefnd þá getur nefndin aflað þeirra upp­lýsinga sem hún þarf. Þetta er bara út í loftið, það er mikil­vægt að þing­menn geti lagt inn fyrir­spurnir, þegar þeir undir­búa mál eða þegar fyrir­spurnirnar hafa ein­hverja þýðingu. Hér erum við komnir langt út fyrir allan ramma,“

Sjá nánar: Björn Leví heldur á­fram: Níu fyrir­spurnir bara í dag

Ráðuneytið segir í svari við fyrirspurn Brynjars að ekki sé haldið sérstaklega utan um tíma starfsmanna sem fer í að undirbúa skrifleg svör við fyrirspurnum þingmanna.

„Svör við fyrirspurnum krefjast mismunandi mikillar vinnu eftir eðli þeirra og umfangi og getur væntanlega numið frá nokkrum klukkustundum upp í nokkra daga fyrir hverja og eina. Í mörgum tilvikum þarf að senda fyrirspurnir til stofnana ráðuneytisins til að fá upplýsingar og því má gera ráð fyrir talsverðri vinnu þar líka.“