Svo virðist sem skatan sé í sérstöku uppáhaldi hjá Framsóknarmönnum því rúmlega sex af hverjum tíu stuðningsmönnum flokksins ætla að gæða sér á skötu á morgun.
Þetta er samkvæmt niðurstöðum könnunar MMR.
Í könnuninni kemur fram að 30 prósent landsmanna ætli að gæða sér á skötu á morgun, á Þorláksmessu. Þetta er töluverð fækkun frá því á síðasta árið þegar 37 prósent sögðust ætla að gæða sér á skötu. Alls hefur hlutfall þeirra sem segjast ætla í skötu lækkað um 12 prósentustig frá því að mælingar MMR á jólahefðum landsmanna hófust árið 2011 og virðist skatan vera á hægri útleið af borðum landsmanna.
Könnunin var framkvæmd dagana 10. til 16. desember 2020 og var heildarfjöldi svarenda 947 einstaklingar, 18 ára og eldri.
Eins og við var að búast nýtur skatan meiri vinsælda meðal þeirra sem eldri eru. 44% svarenda 68 ára og eldri kváðust ætla í skötu þetta árið, samanborið við einungis 16% þeirra sem eru á aldrinum 18 til 29 ára.
Stuðningsfólk Framsóknarflokksins ber höfuð og herðar yfir stuðningsfólk annarra flokka þegar kemur að fyrirætlunum um skötuát þetta árið en 62% þeirra segjast ætla að borða skötu á morgun, Þorláksmessudag. Næst komu stuðningsfólk Miðflokksins (32%) og Sjálfstæðisflokksins (32%) en stuðningsfólk Pírata (21%), Samfylkingarinnar (21%) og Vinstri-grænna (22%) reyndist ólíklegast til að segjast ætla að hyggja á skötuát þetta árið.