Fyrsta sending af bóluefni AstraZeneca kom til landsins í dag og innhélt hún alls 1.200 skammta sem duga fyrir bólusetningu 600 einstaklinga.
Þrír mánuðir verða látnir líða á milli fyrri og seinni skammts bóluefnis AstraZeneca. Með því mót nær efnið hámarksvirkni eða 90 prósent.
Samkvæmt dreifingaráætlun frá AstraZeneca fær Ísland um 14 þúsund skammta af bóluefninu í febrúar, skammtarnir munu berast vikulega. Í heildina mun Ísland vera búið að fá að minnsta kosti 74 þúsund skammta af bóluefni fyrir mánaðamótin mars/apríl.
Aðeins fyrir yngri en 65 ára
Ekki munu þó allir fá að njóta góðs af bóluefninu en fólk sem er eldra en 65 ára verður ekki bólusett með efninu. Ástæða þess er einföld en rannsóknir á virkni bóluefnisins voru ekki gerðar á fólki eldra en 65 ára.
Þessi ákvörðun er sú sama og hefur verið tekin í nágrannalöndunum, þar á meðal Svíþjóð, Noregi og Danmörku, sem og í Belgíu, Póllandi, Frakklandi og Þýskalandi.
Yfirvöld í Sviss hafa hins vegar neitað að samþykkja bóluefni Oxford-háskóla og AstaZeneca á þeim grundvelli að ekki liggi nægar upplýsingar um virkni þess.