Þresti brugðið þegar hann fór í fiskbúð og sá verðið á ýsunni

Þröstur Ólafsson hagfræðingur segir að hann hafi rekið í rogastans þegar fór í fiskbúð nýverið til að kaupa í matinn og sá kílóverðið á ýsunni.

Þröstur segir frá þessu í færslu á Facebook-síðu sinni sem vakið hefur töluverða athygli. Kílóverðið á ýsunni var 2.960 krónur og segir hann að verðið á öðrum tegundum hafi verið svipað.

„Mig rámaði þá í útvarpsviðtal við fisksala austur í bæ, sem réttlætti nokkurra tuga verðhækkun á fiski með Covid 19, þrengingum aðfangaflutninga, hærri vexti o.s.frv. leiddi til þessara hækkana. Sennilega hafa hlustendur flestir kinkað kolli og farið og keypt í fisk í matinn.“

Þröstur segir að hann hafi svo flett fimmtugsmogganum og rekist þar á töflu um afurðaverð á markaði eins og fyrirsögnin hljóðaði.

„Þar var meðalverðið sem fisksalarnir kaupa til endursölu innanlands (allt í kr.): Slægð ýsa 344,23, slægður þorskur 482,74, slægður steinbítur 351,54,“ segir Þröstur sem minnir á að hann hafi keypt ýsuna á 2.960 krónur, eða 8,6-földu því verði.

„Nú er ólíklegt að þrengingar á aðfangaflutningi eða vextir geti útskýrt þetta. Hér eru samantekin ráð á fákeppnimarkaði að hrifsa til sín ránsfeng. Við borgum.“