Aðeins verður heimilt að selja skotelda þrjá daga í kringum áramótin nái reglugerð um skotelda fram að ganga. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur kynnt drögin í samráðsgátt stjórnvalda en þar eru nokkrar breytingar á núgildandi reglum lagðar til.
Hingað til hefur verið heimilt að selja skotelda á tímabilinu frá 28. desember til 6. janúar að báðum dögum meðtöldum. Nái breytingin fram að ganga verður salan aðeins heimiluð dagana 30. desember, 31. desember og 6. janúar.
Þá er lagt til tímabilið sem heimilt er að nota skotelda verði þrengt. Þannig verði heimilt að nota skotelda í 2. og 3. flokki, tertur og rakettur til dæmis, frá klukkan 16 á gamlársdag til klukkan 02:00 1. janúar. Þá verði notkun heimil frá klukkan 16 til 22 á nýársdag og frá klukkan 16 til klukkan 22 á þrettándanum, 6. janúar.
Starfshópur um málið var skipaður í lok árs 2018 en hlutverk hans var að koma með tillögur um hvort og þá með hvaða hætti ætti að takmarka notkun flugelda. Þá var hópnum falið að kanna hvernig hægt væri að tryggja að umrædd takmörkun hefði sem minnst neikvæð áhrif á fjármögnun björgunarsveita sem stóla að stóru leyti á sölu flugelda í rekstri sínum.
Hópurinn skilaði tillögum sínum í janúar síðastliðnum og er megin niðurstaða starfshópsins sú að nauðsynlegt sé að takmarka sem mest þá mengun sem veldur óæskilegum heilsufarsáhrifum hjá einstaklingum.
Einnig þurfi að hafa hugfast óæskileg áhrif skotelda um áramót á áhrif á atferli og líðan margra dýra. Jafnframt bendir starfshópurinn á að huga þurfi að loftmengun hér á landi í víðu samhengi og að draga þurfi úr allri mengun þar sem það er mögulegt, til bættra lífsgæða fyrir allan almenning.
Með reglugerðarbreytingunni er gert ráð fyrir að þrengja tímamörk um almenna notkun skotelda og fækka söludögum eins og að framan greinir.