„Í staðinn fyrir að góna á ráðherra í sjónvarpinu, væri þá ekki sniðugt að þjóðin útvegaði sér amk einn almennilegan ráðherra með alvöru hugsjónir sem hann reynir að hrinda í framkvæmd með afli sinna eigin handa?“
Þetta segir Þráinn Bertelsson, rithöfundur og fyrrverandi þingmaður, á Facebook-síðu sinni. Þar leggur hann til að Hrafn Jökulsson, rithöfundur og baráttumaður fyrir bættri umhverfisvitund, verði gerður að ráðherra.
„Kannski það sé smuga að fá þennan kraftaverkamann, Hrafn Jökulsson , til að taka að sér embætti umhverfisráðherra í eitt eða tvö kjörtímabil meðan hann klárar að hreinsa strandlengju Íslands með eigin hendi með aðstoð tvíefldra umhverfissinna innlendra og erlendra sem hann hefur æst upp til að ganga í lið með sér,“ segir Þráinn.
Hrafn – ásamt Veraldarvinum – hefur að undanförnu farið mikinn við að hreinsa strandlengju landsins, til dæmis í Kolgrafarvík á Ströndum og á Kjalarnesi um liðna helgi. Þráinn telur að Hrafn yrði fullkominn ráðherra.
„Væri ekki fínt að fá hér alvöru umhverfisráðherra sem raunverulega elskar landið okkar og vill frelsa fegurðina úr sóðahöndum og vekur alla þjóðina til meðvitundar um að umhverfi er annað nafn á heimili okkar, staðnum sem við búum á; MÓÐUR JÖRÐ sem sagt,“ segir Þráinn og heldur áfram:
„Það væri líka spennandi að fá einhvern í þetta starf sem skilur mikilvægi þess og nennir að vinna og þorir að skíta út á sér lúkurnar og þarf ekki einkabílstjóra því að hann hefur ekki tíma til að standa í hallærislegu fínheitaráðherrarugli. Hvernig væri að forsætisráðherrann verklausi tæki samtal um þessa hugmynd við sjálfa sig og gerði svo eitthvað í málinu?“