Þráinn syrgir góðan vin: „Hann kenndi mér að fagna hverjum degi sem lífið sendir“

Þráinn Bertelsson, rithöfundur, kvikmyndagerðarmaður og fyrrverandi þingmaður, syrgir góðan vin sinn, Theobald, sem dó um helgina. Bolabíturinn Theobald var mörgum að góðu kunnur en árið 2020 kom út bókin Hundalíf...með Theobald.

Bókin byggðist á samskiptum Þráins og Theobalds í daglegum göngutúrum þeirra félaga. Um var að ræða örsögur og stutt samtöl og er óhætt að segja að bókinni hafi verið vel tekið.

Þráinn greindi frá því á Facebook-síðu sinni í gær að Theobald væri allur, en hann fæddist árið 2016 og var því sex ára þegar hann kvaddi. „Tryggasti vinur sem ég hef eignast um dagana. Hann kenndi mér að fagna hverjum degi sem lífið sendir,“ sagði Þráinn.

Samúðarkveðjunum hefur rignt inn undir færslu Þráins enda margir sem vissu af einstöku sambandi þeirra félaga.