Þráinn Bertelsson, rithöfundur og fyrrverandi þingmaður, brá á leik á Facebook-síðu sinni í morgun og birti hugsanlegt samtal Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra við Höllu Bergþóru Björnsdóttur lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu á aðfangadag.
Eins og greint var frá í gær ræddi Áslaug tvsivar við Höllu eftir að lögregla tilkynnti fjölmiðlum um mögulegt sóttvarnarbrot ráðherra í ríkisstjórninni. Umræddur ráðherra var Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra eins og margoft hefur komið fram.
RÚV greindi frá því í gær að bæði Áslaug og Halla hefðu staðfest að þær hefðu rætt saman. Sagðist Áslaug hafa hringt til að spyrjast fyrir um verklagsreglur um birtingu dagbókarfærslna lögreglu og persónuverndarsjónarmið. Hún hafi ekki haft nein afskipti af rannsókninni.
Þráinn brá á leik sem fyrr segir og birtir uppskrift að hugsanlegu samtali.
„- Komdu sæl, kæra Halla lögreglustjóri, þetta er bara ég dómsmálaráðherrann - þú manst, sú sem skipaði þig í starfið
Ég tek það skýrt fram að ég er alls ekki að hringja til að skipta mér af nokkrum sköpuðum hlut heldur eingöngu til að óska þér og fjölskyldu þinni gleðilegra jóla. Eins og góðum yfirmanni er skylt að gera.
En svona í framhjáhlaupi, af því að ég er nú með þig í símanum: Segðu mér aftur af þessari bjánalegu kjaftasögu í sambandi við hann Bjarna okkar er hún nokkuð frá ykkur komin...?“
Ólafur Hauksson almannatengill bendir á undir færslu Þráins að það sé ekki öfundsvert að vera ráðherra.
„Eina stundina má ráðherra ekki tala við undirmenn eða undirstofnanir og aðra stundina eru uppi háværar kröfur um að ráðherra taki fram fyrir hendurnar á undirmönnum eða undirstofnunum.“
Þráinn svarar því til að hann sé sammála. „Eina huggunin er samt að þetta er mestmegnis innivinna og sæmilega borguð.“