Þótti brauðin hjá Brauð & Co hafa minnkað: „Við þurfum aug­ljós­lega að taka á þessu“

Tals­verðar um­ræður hafa spunnist í Face­book-hópnum Matar­tips um brauðin hjá Brauð & Co. Einn glöggur við­skipta­vinur hóf þráðinn á þeim orðum að svo virtist sem brauðin væru orðin minni en áður. Máli sínu til stuðnings sagðist hann hafa vigtað brauðin eftir kaup.

Brauð og Co hefur slegið ræki­lega í gegn undan­farin misseri og þykja brauðin þeirra með þeim bestu hér á landi. Þess má geta að full­trúi Brauð og Co svaraði fyrir gagn­rýnina í um­ræddum þræði og má lesa við­brögð hans hér að neðan.

Sá sem byrjaði um­ræðuna sagði að brauð sem hann keypti í dag hafi verið 502 grömm, en brauðið þar áður hafi verið 641 gramm. Fyrir ein­hverjum vikum hafi hann fengið brauð sem var 1.131 gramm og við það til­efni sagðist hann hafa haft sam­band við Brauð og Co til að hrósa þeim fyrir að stækka brauðin.

„Þá kom í ljós að þetta virtust hafa verið mis­tök, brauðin eiga víst að vera í kringum 750g til 800g. Meðal­stærð seinustu 6 brauða sem ég hef fengið frá þeim hefur verið 664g, eða um 20% minni en við­miðunar­stærðin. Hvað finnst ykkur, er þetta smá­muna­semi? Er ég einn um að hafa tekið eftir því að brauðin virðast bara minnka og minnka?“

Margir eru þeirrar skoðunar að ekki sé um smá­muna­semi að ræða og þá tjáir lærður bakari sig í þræðinum og segist hann ó­mögu­lega skilja þessi miklu skekkju­mörk. Á flestum þeim stöðum sem um­ræddur bakari hafi unnið á sé vigt til að tryggja að ekki sé mikill munur á milli brauðanna.

Viðar Brin­k, markaðs­stjóri Brauð & Co, svarar fyrir gagn­rýnina í þræðinum og bendir hann á að um hand­verks­bakarí sé að ræða. Það þýðir að alltaf sé sá mögu­leiki fyrir hendi að varan sé mis­jöfn.

„Þetta er allt gert eftir til­finningu hjá bökurum okkar. Stundum eru þau í stærri kantinum og stundum minni. Ekkert brauð er eins og hefur aldrei verið. En þetta er samt allt of mikill munur og á ekki að vera svona. Þegar svona kemur upp þá er eitt­hvað að klikka hjá okkur og við tökum það al­gjör­lega til okkar,“ segir Viðar og virðast margir kunna að meta við­brögð hans.

Segir Viðar að þegar brauð er of lítið eigi að selja það sem hálft en ekki heilt.

„Við þurfum aug­ljós­lega að taka á þessu og fara yfir þetta með okkar frá­bæra starfs­fólki. Ef við vildum að öll brauðin væru ná­kvæm­lega eins þá væru gildin okkar svoldið öðru­vísi. Við viljum að við­skipta­vinir okkar viti að þegar þau kaupa brauð, snúða, croissant eða hvað sem er að það var bakari sem gerði þetta með höndunum sínum,“ segir hann meðal annars í svari sínu og bætir við að settar séu miklar kröfur þegar kemur að gæðum.

„[Við] viljum að þið vitið að við munum skoða þetta vel og vand­lega. Takk fyrir að halda okkur á tánum.“