Þótt skaupið hafi verið klárt þýðir það ekki að menn mega gera það sem ekki má

Guðni Hall­dórs­son, betur þekktur sem Guðni Klipp, fagnaði því á þriðju­daginn að hafa klárað að klippa ára­móta­skaupið fyrir RÚV. Hann birti þar mynd með og bað þjóðina vin­sam­legast um að haga sér.

„Þá er skaupið klárt. Verið nú stillt svo maður þurfi ekki að fara vesenast eitt­hvað meira í þessu #skaup2020,“ skrifaði Guðni.

Ekki nema sólar­hring síðar var Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, gripinn fyrir sótt­varnar­hliðar­spor er hann var á list­sýningu í Ás­mundar­sal þar sem fjölda­tak­markanir voru ekki virtar.

At­vikið vakti litla hrifningu hjá ís­lensku þjóðinni og hafa margir velt fyrir sér hvort það ætti nú ekki vera að vera hluti af ára­móta­skaupinu.

Guðni tísti því í kjölfarið að ábyrgðin væri sín enda hefur fyrra tíst sett af stað keðjuverkun og biður hann þjóðina afsökunar.

„Ég vil biðja þjóðina af­sökunar á þessu Tvíti. Með birtingu á þessu virðist ein­hver keðju­verkun hafa farið af stað og fólk hefur talið sig geta gerta ýmsa hluti sem ekki má. Sökin er mín, en mér til varnar, ég er bara mann­legur og geri mis­tök.