„Eldgosið í Fagradalsfjalli var mjög kurteis viðvörun, því við vitum að það geta verið öflugri gos á Reykjanesskaga,“ segir Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, í Fréttablaðinu í dag.
Jarðhræringar hafa verið áberandi á Reykjanesskaga undanfarnar vikur en Þorvaldur segir ekkert benda til þess að eldgos sé að koma í augnablikinu.
„Ég myndi nú halda miðað við fyrri reynslu að við séum að tala um einhverja mánuði áður en það kemur gos,“ segir hann en minnir þó á að skjálftavirknin nú svipi til þeirrar sem var undanfari eldgossins í Fagradalsfjalli. „Þetta er svipað mynstur og hugsanlegt að við séum að sjá sömu hlutina gerast,“ segir hann í Fréttablaðinu.
Aðspurður um hvar mestu líkurnar séu á að gos komi segir hann það vera í grennd við staðinn þar sem skjálftavirknin hefur verið hvað mest, til dæmis í Eldvörpunum sem eru rétt vestan við Grindavík og í Þorbirni þar sem land hefur risið síðustu vikur.
Hann segir að gos komi ekki fyrirvaralaust. „Við myndum vita af því. Mestar líkur eru á svipuðum atburðum og rétt fyrir gosið í Geldingadölum. Ef kemur til goss á einhverjum þessara staða myndi skjálftavirknin stóraukast og afmarkast við staðinn þar sem kvikan er að brjóta sér leið til yfirborðs.“
Nánar má lesa um málið á vef Fréttablaðsins.