Þorvaldur um mögulegt eldgos: „Þetta er annar raunveruleiki en hefur verið“

„Mann grunar að það sé kvikuhreyfing sem veldur þessari hreyfingu eins og var fyrir helgi. Þarna gaus reglulega á árunum 1210-1240,“ segir Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur í samtali við Morgunblaðið í dag.

Skjálftahrina fór í gang rétt undan Reykjaneshrygg á föstudag og mældust um 60 skjálftar á skömmum tíma. Stærsti skjálftinn sem mældist var 3,7 að stærð og voru upptök þeirra flestra um 4-5 kílómetra vestur af Reykjanestá.

Þorvaldur segir við Morgunblaðið að ef öskugos kemur upp á Reykjanestánni sé viðbúið að það hefði áhrif á starfsemi Keflavíkurflugvallar. Hann segir að breyttur raunveruleiki blasi við og líkur séu á að eldsumbrotatímabil sé hafið á Reykjanesi.

Þorvaldur segir við Morgunblaðið að nokkur svæði séu þekkt frá síðustu Reykjaneseldum og er eitt þeirra við Valhnúkamöl sem er vinsæll útsýnisstaður fyrir ferðamenn.

„Ef við fáum öskugos þar og suðvestanátt þá er vert að hafa það í huga að flugvöllurinn er í næsta nágrenni og hann mun nær örugglega verða fyrir áhrifum af gosi. Það er því ljóst að við þurfum að vera sívakandi fyrir öllu þessu svæði þar sem víða er atvinnustarfsemi svo ekki sé minnst á íbúðabyggð og mannvirki. Þetta er annar raunveruleiki en hefur verið. Við erum komin aftur á þann stað sem við vorum fyrir 800 árum.“