Það hafa margir áhyggjur af stríðinu í Úkraínu um þessar mundir. Bætist það ofan á slæma geðheilsu landans vegna annarra hluta eins og Covid-faraldurinn og erfiðan vetur.
„Umræða um andlega vanheilsu er fyrirferðarmikil í samfélaginu. Þar er meðal annars fjallað um skólaforðun barna og brottfall nemenda úr framhaldsskólum,“ skrifar Þorvaldur Víðisson, sóknarprestur í Fossvogsprestakalli, í grein í Morgunblaðinu í dag. Þar bendir hann á skothelda og ókeypis leið til að vinna bug á áhyggjum, nefnir hann sérstaklega innrás Rússa í Úkraínu.
Hann bendir á félagslega þáttinn. „En eru til fleiri úrræði sem stuðla að góðri andlegri heilsu? Hvernig getur maður aukið birtustigið í eigin lífi, aukið birtustigið í sínu andlega lífi? Ég tel að andlegri vanheilsu þurfi einnig að mæta með andlegum úrræðum, sem eru í boði fyrir alla sem vilja þiggja.“
Leiðin sem hann leggur til er núvitundarstund eða kyrrðarstund þar sem gjarnan er iðkuð kyrrðarbæn eða biblíuleg íhugun.
„Kyrrðarbæn er bænaaðferð sem fer fram í þögn. Í henni opnast hugur og hjarta, öll vera okkar, fyrir Guði handan hugsana, orða og tilfinninga. Fyrir tilstilli náðar Guðs opnum við vitund okkar fyrir honum sem við vitum, fyrir trú, að er hið innra með okkur, nær okkur en andardráttur okkar, nær en hugsun okkar, nær en sjálf vitund okkar,“ segir hann.
„Biblíuleg íhugun er ævagömul aðferð við að biðja yfir textum ritningarinnar. Í biblíulegri íhugun er hlustað á ritningarversin með hjartanu líkt og við ættum í samtali við Guð þar sem hann legði til umræðuefnið. Með þessari bænaaðferð leyfum við orðinu að móta okkur og verða hluti af okkur sjálfum.“
Bendir hann svo á Kyrrðarbænasamtökin á Íslandi sem er hreyfing fólks sem iðkar og stundar þessa andlegu iðju, sjálfu sér og samfélaginu til gæfu. Nánari upplýsingar má finna hér: www.kyrrdarbaen.is.
„Það er eftir miklu að keppa að leggja sig fram í þessari íþrótt, því að sumu leyti er það eins og íþrótt. Maðurinn eflist að andlegum gæðum með andlegri iðkun og bæn. Líkt og með líkamsrækt dagsins, þá virkjast andlegir vöðvar og kraftar við andlega iðju. Slík iðkun og bæn veitir ávexti út í lífið, sem ekki fást í ávaxtadeild matvörubúðanna.“