Þórunn Gréta Sigurðardóttir, formaður Tónskáldafélag Íslands, er afar ósátt með fréttaflutning RÚV af sigri Dísellu Lárusdóttur á Grammy verðlaunahátíðinni um helgina.
Dísella vann Grammy verðlaun fyrir burðarhlutverk sitt í óperunni Akhnaten eftir Philip Glass á Metropolitan í fyrra.
„Það skyggir þó óneitanlega á gleðina hversu vandræðalegt það hefur verið að fylgjast með kauðslegum fréttaflutningi RÚV af þessu afreki íslenskrar listakonu. Grammy verðlaunin eru ein stærstu tónlistarverðlaun heims og þó nokkrir Íslendingar hafa fengið tilnefningar, m.a. Björk alls 15 sinnum, SigurRós, Jóhann Jóhannsson og Ólafur Arnalds. Þetta er ótrúlegur árangur hjá íslensku tónlistarfólki. Dísella er fimmti Íslendingurinn sem hreppir þau,“ skrifar Þórunn.
„Í fyrstu frétt sem birtist skrifuð á vef RÚV um Grammy verðlaunin nú snemma í morgun var ekki minnst á Dísellu, en hins vegar kom fram að Ólafur Arnalds hafi ekki unnið í sínum flokkum. Fréttin var uppfærð þegar leið á morguninn „með upplýsingum um Dísellu Lárusdóttur“ eins og fram kemur á vefnum. Í umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 var það nefnt að Dísella hefði unnið til Grammy-verðlauna, en svo var þeim fyrirvara bætt við, lauslega umorðað, að það væru nú svo sem fáir inni í þessum óperuheimi og svo hefðu nú líka fullt af Íslendingum fengið Grammy verðlaunin áður, t.d. Björk og Ólafur Arnalds, en að þetta væri nú samt flott hjá Dísellu.“
„ Þarna var í einni setningu bæði gert lítið úr sigri hennar og starfsvettvangi innan tónlistargeirans með vísan til rangfærslna. Til að toppa virðingarleysið var fyrsta sjálfstæða frétt sem síðan birtist á vef RÚV um sigurinn undir fyrirsögninni „Dísella birtir mynd af sér með Grammy verðlaunin sín“. Kjarninn í fréttinni er sem sagt ekki að Dísella hafi unnið til Grammy-verðlauna heldur að hún hafi birt mynd af sér á samfélagsmiðli. Þessi frétt stendur enn og fyrirsögnin engum boðleg.“
„Ég leyfi mér að fullyrða að svona hefði ekki verið fjallað um sigur karlmanns í neinu samhengi og mér er misboðið. Mér er misboðið sem tónlistarkonu en ekki síður sem hlustanda RÚV og neytanda þeirra örfáu menningarfrétta sem birtar eru þar og í öðrum íslenskum fjölmiðlum. Að lokum hvet ég RÚV til að taka óperuna Akhnaten til sýninga í sjónvarp,“ skrifar Þórunn að lokum.