Samfélagsmiðlastjarnan Þórunn Ívarsdóttir hefur sent frá sér myndband á Instagram þar sem hún biður meðstjórnanda sinn í hlaðvarpinu Þokan, afsökunar á því sem samfélagsmiðlastjarnan Helgi Ómarsson segir að sé andlegt ofbeldi.
Í hljóðbrotunum má heyra Þórunni meðal annars segja við Alexöndru að, hún sé síðasta manneskjan sem hún myndi segja að væri í formi, „Þú ert ekki í formi, það er engin mótun þarna ,“ „Ég á enga vinkonu sem er verr gift en þú“ og „for real hún á enga peninga,“ segir Þórunn um Alexöndru og hlær.
Fréttablaðiðhefur eftir Alexöndru að hún hafi ekki heyrt í Þórunni. Klipurnar séu þó teknar ú samhengi.
Nú hefur Þórunn stigið fram á Instagram:
„Mig langar bara formlega að biðja bestu vinkonu mína afsökunar og biðja hana um að fyrirgefa mér, vegna alls sem ég hef sagt og gert.
Mér finnst ömurlegt að þurfa að útkljá þetta fyrir framan næstum því 15 þúsund manns. Ég vissi ekki hvað ég var að gera.
Ég vanda mig ógeðslega mikið við að vera góð vinkona en mér hefur mistekist. Ég ætla að gefa vinkonu minni space til að ná utan um þetta og ég vona að við getum talað saman aftur. Ég get ekki talað og sagt þetta nema ég sé hágrenjandi, ég bara afsaka það, mig langar að biðja alla hlustendur Þokunnar afsökunar á framferði mínu, það á enginn að koma svona fram og það á enginn að koma svona fram við vinkonu sína.
Alexsandra mig langar bara frá mínum dýpstu hjartarótum að biðja þig afsökunar, þú veist ég elska þig og þú veist ég geri allt fyrir þig. Ég kem hlaupandi sama hvað. Ég vona að ég geti orðið betri manneskja og að ég geti unnið í mínum málum. Ég vona að ég geti fengið að gera það með vinkonu minni mér við hlið og að við getum unnið úr okkar málum saman, eða í sitthvoru lagi. Ég er ekki að leitast eftir vorkunn eða einhverri samúð, ég vil bara að allir viti að ég iðrast gjörða minna og biðst fyrirgefningar á orðum mínum.“