Tónlistarkonan Þórunn Antonía Magnúsdóttir svara Bubba Morthens fullum hálsi eftir hann sagði listræna hæfileika „ekki að finna í rassinum“ er hún birti léttklædda mynd af sér á Instagram á dögunum.
Fréttablaðið greindi frá því á dögunum að Þórunn Antonía hefði „sýnt á sér beran bossann“ og seinna sama dag skrifaði Bubbi færslu á Twitter um að listræna hæfileika væri ekki að finna í rassinum „þó svo þessum líkamspart sé flíkað hvað mest þessa dagana.“
„Í heiminum er stríð, hlýnun jarðar og brennandi málefni en að ég sé í sundfötum í heitum potti er helst í fréttum,“ segir Þórunn Antonía og deilir skjáskoti af frétt Fréttablaðsins.
„Svo þarf að sjálfsögðu maðurinn – sem virðist hafa fátt annað við tímann sinn að gera en að gera lítið úr mér – að leggja orð í belg,“ segir hún og vísar í Twitter-færslu Bubba um að listrænir hæfileikar eru ekki og hafa aldrei verið uppgötvaðir í rassinum.
Listrænir Hæfileikar eru því miður ekki og hafa aldrei verið uppgvötaðir í rassinum ekki einu sinni aftansöngur þó svo þessum líkams part sé flíkað hvað mest þessa dagana
— Bubbi Morthens (@BubbiMorthens) April 6, 2022