Söngkonan Þórunn Antonía Magnúsdóttir var ekki á þeim buxunum að leyfa virkum í athugasemdarkerfi Facebook síðu K100 að níða af sér skóinn í gær. Hún birtist sjálf og svaraði þeim sem gagnrýndu hana fyrir að ræða um óléttu sína og að hún hefði unnið fram á síðasta dag meðgöngunnar.
„Hvaða væll er þetta, drama drama,“ skrifaði einn í athugasemdakerfið. Þórunn tók sig til og svaraði í tveimur löngm athugasemdum.
„Sem verktaki og sjálfstæð mamma þurfti ég á hverri einustu kronu að halda og vann mína vinnu með þakklæti og gleði og kvartaði ekki neitt undan því hvorki þá né í þessu viðtali. Viðalið snýst bara ekkert um þetta.
Ég er hörkudugleg með sterkt bein í nefinu og þarna var ég hvorki að kvarta né að biðja um að fullorðið fólk hópist saman á svona "þroskaðan og fallegan" hátt og kalli mig aumingja….. Ég tel að ALLAR konur sem bera börn vera algjörar hetur og ég þar meðal talin og umgjörðin ætti að vera miklu meira styðjandi fyrir konur á þessu ferli en það er önnur umræða. Annars bara bestu kveðjur á ykkur öll,“ skrifar Þórunn.
„Svo svona til allra karlmannana sem hafa niðrandi athugasemdir við upplifun kvenna um meðgöngu ferli. Styðjið konur eða þegiði. Þið hafið ekki hugmynd um hversu erfitt þetta er.
Ég væri til í að sjá þá karlmenn hér sem kalla mig aumingja og viðkvæmt blóm mæta í vinnuna seint um kvöld, standa, dansa og syngja á háum hælum að skemmta oft mjög drukknu fólki, í brjáluðum látum og diskó ljósum, verandi stanslaust verkjaður, óglatt, með mígreni í 9 mánuði.“