Þórunn ætlaði að kjósa Pírata en er hætt við: „Mun ekki styðja svona rit­skoðun“

Ó­hætt er að segja að sú á­kvörðun for­svars­manna Pírata­spjallsins, eins virkasta stjórn­mála­spjalls landsins á Face­book, að fjar­lægja á­kveðinn um­ræðu­þráð hafi vakið við­brögð innan spjallsins.

Kona nokkur, Þórunn að nafni, setti þá inn færslu þar sem finna mátti við­tal við Bruce Lipton en um­fjöllunar­efnið var meðal annars Donald Trump og sam­fé­lags­miðlar. Um­ræðan var fjar­lægð án nokkurrar skýringar og var Þórunn mjög ó­sátt við það.

„Vá...ég var buin að á­kveða að kjósa Pírata í ár, en hef ekki verið á kjör­skrá á Ís­landi í fjölda mörg ár, en ég er snar hætt við! Mun ekki styðja svona rit­skoðun! Ég set inn spurningu sem mig langar að fá sjónar­horn Pírata á og henni er kippt úr !!! Svona rit­skoðun er mér ekki að skapi! Og ykkur til skammar!,“ segir hún.

Björn Leví Gunnars­son, þing­maður Pírata, tekur að hluta til undir þessa gagn­rýni og segist ekki skilja hvers vegna farið var svona með færsluna. Hún hafi verið á­gæt­lega mál­efna­leg.

Einn af stjórn­endum spjallsins hefur beðist af­sökunar og segir að á­stæðan hafi verið endur­tekin um­ræða.

„Ég vil hvetja þau sem hafa á­huga á að ræða mál­efni um Trump, heimildir sam­fé­lags­miðla og þær um­ræður undir þann þráð þar sem þegar eru mjög upp­lýsandi og góðar um­ræður. Ég biðst af­sökunar á því að þær upp­lýsingar komu ekki fram. Mér skilst að ætlunin hafi ekki verið að fjar­lægja heldur frysta og beina að um­ræðum sem þegar eru svo ekki séu margar um­ræður um sama mál­efni,“ segir stjórnandi spjallsins.

Þegar Þórunn er beðin um að endur­skoða þá á­kvörðun sína að kjósa ekki Pírata í haust segist hún senni­lega myndi skila auðu ef gengið yrði til kosninga í dag. Nú þegar af­sökunar­beiðnin er komin og þegar henni verður runnin reiðin sé þó aldrei að vita.

Í um­ræðunum kveðst einn vona að fólk dæmi ekki Pírata­hreyfinguna í heild út frá svona at­vikum. „Ég held nefni­lega að það að stýra Ís­landi sé mun ein­faldara og auð­veldara verk­efni en að stýra Pírata­spjallinu,“ segir hann.