Þor­steinn vill lægra vöru­verð: Sjö af hverjum tíu kössum eru sjálfs­greiðslu­kassar

„Nú verður spennandi að fylgjast með hvort menn munu færa verð til baka þegar krónan styrkist þó að ég efist um það,“ sagði Þor­steinn Sæ­munds­son, þing­maður Mið­flokksins, í um­ræðum um störf þingsins á Al­þingi í dag.

Þor­steinn kallaði meðal annars eftir því að verslanir lækki verð á nauð­synja­vörum nú þegar krónan hefur styrkst gagn­vart helstu gjald­miðlum að undan­förnu.

„Af­leiðingar kórónu­veirunnar hafa komið mjög fram í efna­hags­lífi þjóðarinnar eins og öllum er kunnugt, þó m.a. með því að gengi krónunnar hefur sigið mjög harka­lega en núna upp á síð­kastið, svona síðustu viku eða svo, hefur borið svo við að það lítur út fyrir að hún sé að­eins að hressast.“

Þor­steinn benti á að þessi lækkun krónunnar hefði komið fram í vöru­verði með harka­legum hætti. Menn hafi verið fljótir til að hækka verð þegar krónan gefur eftir en nú verði spennandi að sjá hvort nú komi lækkun þegar krónan er tekin að styrkjast.

Þor­steinn sagði að þeir sem höndla með neyslu­vörur á Ís­landi hafi ekki alveg risið undir trausti að undan­förnu. „Það má m.a. sjá í því hvernig út­flutningi á land­búnaðar­af­urðum hefur verið háttað núna og þar hafa komið fram mis­brestir í toll­af­greiðslu sem nú er til rann­sóknar. Það ríður á miklu fyrir al­menning í landinu og heimili þar sem at­vinnu­leysi er mjög al­gengt og menn hafa minna milli handanna heldur en annars hefur verið,“ sagði Þor­steinn og bætti við að á­byrgð og festa væri mikil­væg á þessum tímum.

„Þeir hafa líka haldið því fram, kaup­menn, að þetta sé vegna launa­hækkana sem þeir hafa hækkað verð á nauð­synjum. Nú er það þannig, herra for­seti, að þegar ég fer í mat­vöru­verslun þá háttar þannig til að það er búið að fækka þar af­greiðslu­kössum um lík­lega sjö af tíu og ég verð þá að á­lykta fyrst þessir sjö eru orðnir sjálf­virkir að þessir þrír starfs­menn sem eftir sitja hafi fengið svona rosa­lega kaup­hækkun. Fyrst að launa­hækkanir eru svona ríkur þáttur í því að verðið hafi hækkað. Með þessum málum þarf að fylgjast vand­lega,“ sagði Þor­steinn.