Þor­steinn telur okkur vera að gera mis­tök: „Stjórn­völd völdu harka­legasta val­kostinn“

Þor­steinn Víg­lunds­son, fyrr­verandi þing­maður og ráð­herra, er í hópi þeirra sem efast um rétt­mæti á­kvörðunar ríkis­stjórnarinnar á föstu­dag um að allir sem koma til landsins fari í tvær skimanir og sótt­kví þar til niður­staða úr seinni skimun fæst.

Þor­steinn segist á Face­book-síðu sinni vera þeirrar skoðunar að á­kvörðunin muni hafa al­var­legar og lang­varandi efna­hags­legar af­leiðingar. Spyrja megi hvort þetta sé nauð­syn­legt skref í stöðunni.

„Með fullri virðingu fyrir al­var­leika Co­vid þá verður að segjast að það vekur at­hygli hversu lítil greining virðist liggja þarna að baki, bæði hvað varðar efna­hags­leg á­hrif en ekki síður á­hrif á sótt­varnir,“ segir Þor­steinn sem segir að eðli­legt hefði verið að stjórn­völd hefðu metið þá val­kosti sem sótt­varnar­læknir lagði fram með hlið­sjón af ætluðum á­hrifum á hvoru tveggja.

Þor­steinn veltir fyrir sér nokkrum at­riðum í þessu sam­hengi.

„1) Við munum þurfa að lifa með Co­vid þar til bólu­efni finnst. Sá tíma­rammi er ó­ljós en þýðir um leið að sam­spil að­gerða í sótt­varnar­skyni og í efna­hags­málum er línu­dans þar sem vega verður saman á­hrif að­gerða á hvoru tveggja til skemmri og lengri tíma.

2) Þessi línu­dans er við­fangs­efni stjórn­málanna en ekki sótt­varnar­yfir­valda en lítil um­ræða virðist þó fara fram á vett­vangi stjórn­málanna um þetta jafn­vægi.

3) Of harka­legar sótt­varnar­að­gerðir hafa mjög nei­kvæð efna­hags­leg á­hrif. Kreppur og lang­tíma­at­vinnu­leysi hafa einnig mjög nei­kvæð á­hrif á heilsu fólks þó svo á­hrif þess taki lengri tíma að koma fram. Um þetta vantar meiri um­ræðu í þessu sam­hengi.

4) Stjórn­völd völdu harka­legasta val­kostinn án þess að leggja mat á efna­hags­leg á­hrif hans og án þess að kynna neinar efna­hags­legar mót­vægis­að­gerðir sam­hliða.

5) Að vega saman tekjur af ferða­mönnum við aukna neyslu Ís­lendinga hér­lendis heldur ekki vatni til lengdar þar sem at­vinnu­leysi fer nú ört vaxandi og á­hrif þess á tekjur heimilanna eru fyrst nú að koma fram.

Þor­steinn telur að lokum að það sé mjög á­mælis­vert að gripið hafi verið til hertra að­gerða, að því er virðist án nokkurrar yfir­legu eða greiningar á á­hrifum hennar.

Færsla Þor­steins hefur vakið tölu­verð við­brögð og eins og gengur og gerist taka margir undir hana á meðan aðrir eru ó­sam­mála honum. Einn bendir til dæmis á stöðuna í öðrum löndum þar sem far­aldurinn grasserar nær stjórn­laust. Svarar Þor­steinn því til að um­fang bylgjunnar hér á landi sé mun minna en þeirrar fyrstu og betur virðist ganga að ráða niður­lögum hennar.

„Það er ó­um­deilt. Reynsla sótt­varnar­yfir­valda er þar vafa­lítið að segja til sín en ekki síður við­brögð okkar sjálfra við far­aldrinum. Það er líka vert að hafa í huga að við eigum eftir að fara í gegnum fleiri slíkar bylgjur áður en yfir líkur og ó­raun­hæft að ætla að loka okkur frá um­heiminum næstu mánuðina.“

Ákvörðun ríkisstjórnarinnar á föstudag mun hafa alvarlegar og langvarandi efnahagslegar afleiðingar. Spyrja má hvort...

Posted by Þorsteinn Viglundsson on Mánudagur, 17. ágúst 2020