Þorsteinn skilur ekki samúð þjóðarinnar þegar þetta viðgengst á sama tíma: „Hin meinta umhyggja er hræsni“

Kynjafræðingurinn Þorsteinn V. Einarsson finnst samúðin sem fólk hefur sýnt með hestunum þremur, sem hafa verið til mikillar umfjöllunar síðustu daga, vera þversagnakennd.

Myndir af hestunum hafa vakið mikla athygli síðustu daga og þótti mörgum að myndir af þeim bæru merki þess að þeir sætu illri meðferð.

Þorsteini finnst skrýtið að fólk sýni þessum þremur hestum samúð þegar talsvert fleiri hestum er slátrað.

„Fólk að missa vitið yfir þremur hrossum sem er ekki komið vel fram við en Sláturfelag suðurlands leitar logandi ljósi að hrossum til að slátra til að senda vikulega til Sviss. Og okkur er drull. Rugluðu þversagnirnar.“ skrifar Þorsteinn á Twitter.

Í kjölfarið bendir hann á að heildarslátrun hrossa á síðasta ári hafi verið 3.253 hestar, sem jafngildi 390 tonnum. Þær upplýsingar koma úr ársskýrslu SS, en það fer fyrir brjóstið á Þorsteini að orðið „sláturgripir“ sé notað. „Jaaá, það eru auðvitað ekki hestar eða folöld. Sláturgripir. Þeir elska að láta slátra sér.“ segir hann.

„Heildarslátrun nautgripa árið 2021 var 1.201 tonn af 5.916 sláturgripum… ég meina, náttúran. Heingrás lífsins.“ skrifar Þorsteinn og bætir við kaldhæðnislega: „Hringrás lífsins hjà Guði almáttugum Sláturfélagi Suðurlands. EN HAFIÐI HEYRT UM HROSSIN ÞRJÚ Í BORGARFIRÐINUM??“

Umfjöllun Þorsteins um málið fékk misjafnar viðtökur. Til að mynda svaraði netverji honum með þessum orðum: „Það er munur á sláturfé sem farið er vel með og dýraníði.“

Þorsteinn svaraði: „Ég þekki muninn á vanrækslu og dràpum. En hin meinta umhyggja er hræsni.“