Þorsteinn sendir Katrínu tóninn: Hafði nákvæmlega ekkert að segja

Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og pistlahöfundur í Fréttablaðinu, sendir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og ríkisstjórn hennar tóninn í pistli í blaðinu í dag.

Þar gerir hann áramótaboðskap Katrínar og formanna samstarfsflokka hennar að umtalsefni og segir að hann hafi verið án nýmæla, án stefnu og alveg laus við leiðsögn fyrir atvinnulíf og launafólk.

„Einhvern tímann heyrði ég því fleygt að í pólitík væri loftið fullt af ræðum og öfugt. Þetta hefur sem sagt hent áður. En það kemur meira að sök þegar stór mál blasa við, sem kalla á skýra stefnu og ákvarðanir,“ segir hann og telur upp athyglisverðu punktana:

„Forsætisráðherra hafði ekkert að segja um samstarf Íslands við aðrar þjóðir.
Forsætisráðherra boðaði engar aðgerðir til að styrkja samkeppnisstöðu atvinnulífsins.
Forsætisráðherra átti ekki efni í eina setningu til að lýsa í hverju kjara- og vinnumarkaðsstefna ríkisstjórnarinnar væri fólgin.
Forsætisráðherra nefndi enga tiltekna aðgerð í loftslagsmálum, sem hrint yrði í framkvæmd á þessu ári.
Forsætisráðherra greindi ekki frá neinum áformum um að ákvarðanir yrði teknar á þessu fimmta ári stjórnarsamstarfsins um nýjar virkjanir til orkuskipta og nýsköpunar.
Forsætisráðherra lýsti engum hugmyndum um hvernig ná mætti sátt í sjávarútvegi á þessu fimmta ári stjórnarsamstarfsins.
Forsætisráðherra nefndi ekki eina tiltekna aðgerð til lausnar á vanda Landspítalans á þessu fimmta ári stjórnarsamstarfsins.“

Þorsteinn fer um víðan völl í grein sinni og gagnrýnir ýmislegt hjá ríkisstjórninni.

„Þegar ríkisstjórn Íslands settist niður eftir kosningasigur ákvað hún það eitt, sem hönd er á festandi, að stækka kerfið og fjölga ráðuneytum um 20 prósent og ráðherrum um 10 prósent.
Það er umframeftirspurn eftir ráðherrastólum, ráðuneytisstjórastöðum og skrifstofustjórastöðum en hörgull á hjúkrunarfræðingum. Það vafðist ekki fyrir ríkisstjórn Íslands hvort kerfisvandamálið væri léttara að leysa. Þar við situr á fimmta starfsári hennar.“

Greinina má lesa í heild sinni hér.