Þorsteinn segir umræðuna hafa farið harkalega í eina átt á meðan lykilþátturinn gleymdist

Þor­steinn Víg­lunds­son, tals­maður Heidel­berg Materials á Ís­landi, segir að gleymst hafi að líta til loft­lags­mála í um­ræðunni um mögu­legan náma­gröft fyrir­tækisins í Litla-Sand­felli í Þrengslum sem flytja á um Þor­láks­höfn til Evrópu og nota sem í­blöndunar­efni í sement.

Þor­steinn segir að fyrir­tækið hafi í síðustu viku haldið vel heppnaðan í­búa­fund um fyrir­hugaða mó­bergs­vinnslu. Um­ræðan hafi verið gagn­legar og spurningarnar eðli­lega margar.

„Í opin­berri um­ræðu í kjöl­farið þykir mér þó um­ræðan hafa farið nokkuð harka­lega í eina átt og lofts­lags­þátturinn, megin­for­senda verk­efnisins, að miklu leyti gleymst,“ segir Þor­steinn í að­sendri grein á Vísi.

Hann segir ekki hlaupið að því að hætta notkun sements enda sé það uppi­staðan í gríðar­mörgum mann­virkjum og enginn stað­gengill í sjón­máli.

„Þess vegna verður að finna leiðir til að minnka kol­efnis­spor þess. En það er ein­mitt hér sem við verðum að skoða stöðu mála heild­stætt í heiminum.“

Þor­steinn spyr hvort Ís­land geti verið ey­land í um­heiminum. „Við okkur blasir spurningin hvort við ætlum að taka saman á­byrgð á því að gera þetta vel, hvort við ætlum að láta af hendi lífs­gæði sem við erum farin að taka sem sjálf­sögðum hlut eða hvort við ætlum að gefast upp gagn­vart lofts­lags­vandanum,“ segir Þor­steinn.

„Getum við með góðri sam­visku út­hýst námu­vinnslu til þróunar­ríkja og byggt okkar sam­fé­lag án þess að vita hvaðan eða hvernig byggingar­efnin koma? Getum við gert kröfu um að jöklum heimsins sé bjargað án þess að taka sjálf þátt í því verk­efni?“