Þorsteinn segir flesta sammála þessu nema flokka lengst til hægri og vinstri

Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi ráðherra og fjölmiðlamaður, ræðir um miðjupólitík, þá sérstaklega í samhengi við kosningasigur Framsóknar í sveitastjórnarkosningunum, í pistli sínum í Fréttablaðinu í dag. Hann segir suma lýsa miðjupólitík sem skoðanaleysi, en segir sannleikann vera að á miðjunni þurfi menn að sækja og verjast bæði til hægri og vinstri.

„Alvöru miðjupólitík getur því ekki eytt því eðli stjórnmálanna að takast á um hugmyndafræði og berjast fyrir völdum.“ bætir Þorsteinn við.

Þá segir Þorsteinn miðjupólitík geta verið mis skynsamlega og ábyrga, rétt eins og önnur pólitík, og nefnir sem dæmi samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Hann segir sáttmálann vera fínt dæmi um efnislega skynsama og ábyrga miðjupólitík.

„Miðjupólitíkin í sáttmálanum felst í því að fjármunum er skipt jafnt á milli framkvæmda til þess að bæta almenningssamgöngur og svo styrkja hraðbrautir, stokka og mislæg gatnamót. Nokkrum fjármunum er svo varið til að bæta aðstöðu þeirra sem ganga og hjóla.“ útskýrir Þorsteinn, sem segir þó á að enginn hafi talað fyrir sáttmálanum með því að benda á að um væri að ræða hófsamar breytingar.

„Fráfarandi meirihluti í borgarstjórn seldi sáttmálann eins og honum væri einvörðungu ætlað að efla almenningssamgöngur. Minnihluti sjálfstæðismanna talaði gegn honum á sömu forsendu. Þvert á efni sáttmálans stýrði hugmyndafræði jaðranna umræðunni.“ segir Þorsteinn og bætir við:

„Þessi ósannsögli gæti með öðru hafa hjálpað Pírötum í Reykjavík. Að sama skapi kann hún að eiga sinn þátt í að helstu flokkar meirihlutans og minnihlutans töpuðu illa, því að fleiri kjósendur þeirra standa nær miðjunni.“

Í kjölfarið ræðir Þorsteinn um Evrópusambandið og segir að í raun yrði full aðild að því engin grundvallarbreyting, heldur myndi hún einungis færa miðjupólitíkina lengra út.

„Þessi miðjupólitík er yfirleitt studd af frjálslyndum flokkum, hófsömum hægri flokkum og sósíal­demókrötum. Á móti eru flokkar lengst til hægri og vinstri.“ segir Þorsteinn.

Í lok pistilsins segir Þorsteinn að það þurfi að að tryggja stöðugleika í þjóðarbúskapnum. Og til þess þurfi ábyrg miðjupólitík í ríkisfjármálum að leysa óábyrga miðjupólitík af hólmi.