Þorsteinn Pálsson: Verður þetta næsta ríkisstjórn?

Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins á árunum 1893 til 1991, spáir í spilin fyrir komandi Alþingiskosningar í vikulegum pistli sínum í Fréttablaðinu í dag.

Aðeins sex mánuðir eru í kosningar og bendir Þorsteinn á að smám saman sé farið að skýrast hvaða stjórnarmyndunarkostir eru í boði og hverjir ekki. Í pistlinum færir Þorsteinn rök fyrir því að líklegasta stjórnin eftir kosningar sé ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, VG og Miðflokks.

„Samfylkingin hefur útilokað samstarf við Sjálfstæðisflokk og Miðflokk. Einnig er sennilegt að Sjálfstæðisflokkurinn hafi hugsað brottvikningu fulltrúa Viðreisnar úr stjórn Íslandspósts sem óbein skilaboð til kjósenda sinna um að samstarf við Viðreisn sé ekki á dagskrá.“

Þorsteinn segir að þetta þýði að Sjálfstæðisflokkurinn horfi fyrst og fremst til samstarfs við jaðarflokkana lengst til vinstri og hægri en af flokkunum sem liggja næst miðjunni líti hann einungis til Framsóknar.

„Í krafti stærðar sinnar á Sjálfstæðisflokkurinn mesta möguleika á að tryggja sér setu við ríkisstjórnarborðið. En útilokun hans sjálfs á öðrum og útilokun annarra á honum gerir það að verkum að hann hefur ekki fyrr verið í jafn þröngri málefnalegri stöðu,“ segir Þorsteinn. Þannig séu möguleikar Sjálfstæðisflokks til að hafa áhrif fyrst og fremst fólgnir í að koma í veg fyrir breytingar.

Hann segir að VG sé að mörgu leyti í svipaðri stöðu og Framsókn hafði þegar hún réði því hvort ríkisstjórnir voru myndaðar til hægri eða vinstri.

„Í raun breyttist VG úr róttækum vinstri flokki í praktískan þegar þau tóku að sér eftir hrun að framkvæma umfangsmestu íhaldsaðgerðir í ríkisfjármálum á lýðveldistímanum. Í núverandi samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn hafa engin málefni verið hugmyndafræðilega erfið, en kyrrstaðan oftast verið lausnin, nema í skipulagi heilbrigðismála.“

Þorsteinn segir að í ljósi þröngrar málefnastöðu Sjálfstæðisflokksins sé líklegast að VG muni hafa mest um það að segja hvers kyns ríkisstjórn verður mynduð. Í byrjun hafi grasrótin í VG kallað á skýra stefnu en nú skipti völdin hana meira máli. Þetta auðveldi forystu flokksins að taka við gamla hlutverki Framsóknar.

En hver er þá líklegasta stjórnin?

Þorsteinn bendir á að VG hafi hafnað málamiðlunarhugmyndum um að setja í stjórnarskrá ákvæði um að nýtingarréttur að auðlindum í þjóðareign skuli vera tímabundinn. Með því virðist VG útiloka samstarf við Samfylkingu og Viðreisn.

„Verði þetta sérhagsmunaákvæði samþykkt kallar það á endurstaðfestingu á nýju þingi eftir kosningar. Missi stjórnarflokkarnir meirihlutann er aðeins ein leið fyrir VG til að tryggja því framgang. Hún er að bjóða Miðflokknum um borð. Fyrir þær sakir er líklegast að það verði næsta ríkisstjórn,“ segir Þorsteinn og bætir við að VG þrengi stöðu sína með því að hafna málamiðlun um auðlindaákvæðið en geti tryggt sér áframhaldandi ríkisstjórnarforystu með þessu móti.

Vangaveltur Þorsteins má lesa í heild sinni hér en í pistlinum segir hann að líkur á hreinni stjórn til hægri eða vinstri séu fjarlægir. „Jaðarflokkastjórn virðist líklegust eins og sakir standa. Miðjuflokkarnir þurfa að styrkja stöðu sína enn frekar fram að kosningum eigi að snúa líkunum við.“