Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri og einn aðaleigandi Samherja, tjáir sig um Verbúðina í samtali við Fréttablaðið í dag.
Síðasti þátturinn var sýndur á sunnudagskvöld og er óhætt að segja að þættirnir hafi fallið vel í kramið hjá landsmönnum. Þættirnir þykja draga upp ansi raunsæja mynd af kvótakerfinu og frjálsu framsali aflaheimilda sem varð að lögum árið 1990.
Í stuttu samtali við Fréttablaðið í dag segist Þorsteinn Már ekki kannast við þá mynd sem dregin er upp í þáttunum. Hann vill að öðru leyti lítið tjá sig um þá. „Ég ætla ekkert að tjá mig um þá,“ segir hann í samtali við Fréttablaðið en tjáir sig þó örlítið.
„Ég ætla bara að segja að ég hef tengst sjómennsku í áratugi, lengi. Og hef tekið þátt í þessu sem atvinnurekandi frá ’83. Ég kannast ekki við þessa mynd sem er verið að draga upp.“