Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir að fyrirtækið hafi gert mistök og ámælisverðir viðskiptahættir hafi fengið að viðgangast í starfsemi Samherja í Namibíu.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í yfirlýsingu frá Þorsteini sem birtist í Fréttablaðinu í dag. „Við gerðum mistök og biðjumst afsökunar. Ámælisverðir viðskiptahættir fengu að viðgangast í starfsemi útgerðar Samherja í Namibíu,“ segir hann meðal annars.
Namibíumálið er til rannsóknar hjá héraðssaksóknara og hjá saksóknurum í Namibíu en málið fór af stað eftir afhjúpum Kveiks og Stundarinnar í nóvember 2019.
Í Fréttablaðinu í dag birtist heilsíðuauglýsing með yfirlýsingu sem Þorsteinn Már skrifar undir, en yfirlýsinguna má sjá hér að neðan:
„Ámælisverðir viðskiptahættir fengu að viðgangast í starfsemi útgerðar Samherja í Namibíu. Veikleikar voru í stjórnskipulagi og lausatök sem ekki áttu að líðast. Við brugðumst ekki við eins og okkur bar.
Þetta hefur valdið uppnámi hjá starfsfólki okkar, fölskyldum, vinum, samstarfsaðilum, viðskiptavinum og víða í samfélaginu. Við hörmum þetta og biðjumst einlæglega afsökunar.
Það geri ég persónulega sem forstjóri og einnig fyrir hönd félagsins sem ætíð hefur haft vönduð vinnubrögð að leiðarljósi í allri sinni starfsemi.
Við viljum ekki láta við það sitja að biðjast afsökunar heldur draga lærdóm af þessum mistökum og tryggja að ekkert slíkt gerist aftur. Í því skyni höfum við gripið til viðamikilla ráðstafana.
Frá upphafi hefur það verið meginmarkmið okkar að framleiða hágæða sjávarafurðir í sátt við umhverfið með ríka áherslu á sjálfbærni og góða umgengni við auðlindir sjávar. Við viljum halda því áfram og horfa fram á veginn.
Mistök okkar í Namibíu eru ekki síst okkur sjálfum mikil vonbrigði. Við munum ekki láta slíkt henda aftur.“
Á heimasíðu Samherja er svo að finna ítarlegri yfirlýsingu.