Þorsteinn Sæmundsson, fyrrverandi þingmaður Miðflokksins, segir að það mikilvægasta sem prýtt getur einn stjórnmálamann sé heiðarleiki og traust.
Þorsteinn gerði þá ákvörðun síns gamla félaga, Birgis Þórarinssonar, að umtalsefni en hann tilkynnti um helgina að hann hefði ákveðið að söðla um og ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn – örskömmu eftir að hann var kjörinn á þing fyrir Miðflokkinn.
Í pistli sem birtist á vef Vísis í gær segir Þorsteinn að flestir stjórnmálamenn sem hann hefur kynnst á stuttum ferli búi yfir þeim eiginleikum að vera heiðarlegir og traustir.
„Þó eru innan um einstaklingar sem búa yfir sviksemi og óheiðarleika. Fáir eru þó þeir sem vísvitandi ganga til leiks með blekkingar og svik sem eina farangurinn. Einstaklingar sem hafa svo lágan siðferðisþröskuld að þeir treystast til þess að lauma sér inn á þing með hjálp heiðarlegs fólks sem hefur lagt á sig ómælda vinnu og lagt til fé svo að framboðið mætti takast,“ segir Þorsteinn. Hann nefnir Birgir aldrei á nafn í pistli sínum en augljóst er við hvern er átt.
„Sviksemi af þessum toga er því miður fylgifiskur stjórnmála en sem betur fer fágætur. Þeir sem treystast til þess að láta atkvæði sitt falt óðar en eftir því er leitað og stökka af vagninum sem dreginn var af heiðarlegu og hrekklausu fólki sem háði kosningabaráttu í góðri trú; Þeir sem berja sér á brjóst í síðbúinni vandlætingu til að breiða yfir sviksemi sína eru ekki margra aura virði. Hugsanlega þrjátíu silfurpeninga,“ segir hann.
Þorsteinn bendir á að ferill slíkra stjórnmálamanna verði oftlega í styttra lagi. Það sé jú þannig að þó boginn nagli sé réttur verði hann aldrei sem nýr.
„Þeir sem einusinni hafa sýnt sviksemi eru ekki verðir trausts og mun ekki verða sýnt fullt traust í nýjum heimkynnum. Þeir sem í Biblíunni nefnast Farísear berja sér einatt á brjóst og þakka fyrir meinta góðsemi sína. Í slíkum býr ekki góðsemi ekki sannleikur ekki manndómur.“
Þorsteinn segir það vera eitt að skipta um stjórnmálaflokk sökum málefnalegs ágreinings.
„Annað er að taka til þess ráðs þegar maður veit að maður kemst ekki á lista flokks drauma sinna að orma sig inn á lista flokks sem maður ,,tilheyrir“ gagngert til að yfirgefa flokkinn strax að kosningum loknum og fara því inn á þing á fölskum forsendum frá byrjun. Það er lítilmennska,“ segir Þorsteinn sem vísar í Guðs orð í lok pistils síns, en Birgir er eins og kunnugt er guðfræðingur að mennt.
„Í Mattheusarguðspjalli segir: ,,Varist falsspámenn. Þeir koma til yðar í sauðaklæðum en innra eru þeir gráðugir vargar. Af ávöxum þeirra skuluð þér þekkja þá.“ Við þá sem þannig koma fram segi ég: Farvel, megi uppskeran verða eins og til var sáð. Guð blessi Sjálfstæðisflokkinn!“