Þor­steinn læknir var reiðu­búinn að starfa í Súða­vík en Gylfi sagði nei: „Þessi at­huga­semd kom nokkuð flatt upp á for­stjórann“

Þor­steinn Jóhannes­son, skurð­læknir og fyrr­verandi yfir­læknir Hvest, skrifar grein á BB.isþar sem segir farir sínar ekki sléttar af sam­skiptum sínum við Gylfa Ólafs­son, for­stjóra Hvest.

„Undir­ritaður, sem starfaði sem læknir á Ísa­firði í 27 ár og þekkir vel til þjónustu­svæðis Hvest, (Heil­brigðis­stofnun Vest­fjarða) dvaldi ný­liðið sumar í Álfta­firði við Ísa­fjarðar­djúp. Hvar sem ég kom eða hvert sem ég fór hitti ég skjól­stæðinga Hvest. Sam­eigin­legt meðal flestra þeirra, einkum þeirra sem komnir voru yfir miðjan aldur, var um­ræða um vanda­mál að ná í lækni eða að fá tíma á heilsu­gæslu­stöð, langur bið­tími eftir sím­tali og eða við­tali við lækni. Þegar líða tók á sumarið kvörtuðu skjól­stæðingarnir yfir að þurfa að tala ensku eða dönsku í sam­skiptum við lækna þá loksins er þeir fengu við­tal,“ skrifar Þor­steinn.

„Í ljósi þess sem áður er sagt hafði ég sam­band við for­stjóra Hvest, Gylfa Ólafs­son, sem jafn­framt er í for­svari Ísa­fjarðar­bæjar sem for­maður bæjar­ráðs og á­málgaði við hann að ég væri til­búinn að starfa sem heilsu­gæslu­læknir með mót­töku í Súða­vík. Væri reiðu­búinn að starfa tvær vikur í mánuði, sjá 15 skjól­stæðinga á dag, taka sím­töl, sinna lyfja­endur­nýjun og tala ís­lensku! Mér fannst sem for­stjóranum þætti þetta ekki svo slæmt en hann vildi í­huga þetta til­boð og við myndum svo vera í sam­bandi eftir nokkra daga. Við náðum svo saman aftur að 5 dögum liðnum, í stystu máli þá af­þakkaði for­stjórinn þetta „til­boð“ mitt,“ heldur hann á­fram.

„Ég gat ekki látið hjá líða að benda honum á að hann sem for­stjóri Hvest bæri á­byrgð á að fram­boð heil­brigðis­þjónustu væri nægt og sem for­svars­maður bæjarins væri hans að sjá að grunn­þjónusta við íbúa Ísa­fjarðar­bæjar væri í lagi. Heil­brigðis­þjónusta er einn af mikil­vægust grunn­stoðum hvers sam­fé­lags. Þessi at­huga­semd kom, að mér virtist, nokkuð flatt upp á for­stjórann, sem hváði og spurði: Ætlar þú með þetta í BB? Ja mér hafði nú ekki komið slíkt í hug svaraði ég að bragði en fyrst þú stingur uppá því mun ég skoða það. Auð­vita eiga bæjar­búar að vita af svona sam­skiptum. Að þessum orðum sögðum mundi ég eftir til­vitnun, sem eignuð var lands­þekktri konu er sagði þegar um­ræða var um fjöl­miðla og að „komast“ í fréttirnar; „ja betra er illt um­tal en ekkert! Mestu máli skiptir að vera í sviðs­ljósinu.“

Að lokum kvaddi ég for­stjórann og óskaði honum vel­farnaðar í starfi,“ skrifar Þor­steinn að lokum.