Þorsteinn hjólar í Kára og Þórólf og varar við því að fara þessa leið

Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur varar sterklega við því að fólki verði mismunað eftir því hversu marga skammta bóluefnis við kórónaveirunni það hefur fengið. Hann segir hugmyndir þess efnis í meira lagi varasamar.

Þetta kemur fram í aðsendri grein eftir hann sem birtist á síðum Morgunblaðsins í dag.

„Við þessu er réttilega varað í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins sunnudaginn 12. desember og vísað til sögunnar. Því miður virðast alltof fáir gera sér grein fyrir að öll slík mismunun, sama hversu sakleysislega hún lítur út í byrjun, vindur ávallt upp á sig. Sá sem er mismunað er brennimerktur. Brennimerkingin leiðir til æ harðari mismununar, sem aftur styrkir brennimerkinguna. Á endanum er sá sem er mismunað útilokaður með öllu.“

Þorsteinn segir að nú þegar sjáist þessi þróun í ýmsum nágrannalöndum okkar.

„Í Austurríki er óbólusett fólk nú innilokað á heimilum sínum og eftir áramót er stefnt að fangelsun þess. Því miður örlar nú þegar á sömu tilhneigingu hérlendis,“ segir hann og bætir við að taktinn slái meðal annars Kári Stefánsson og Þórólfur Guðnason. Segir hann að Kári hafi farið fram á „lífstíðarfrelsissviptingu“ þeirra sem þiggja ekki bóluefni og Þórólfur hafi kallað eftir mismunun barna.

Þorsteinn bendir svo á að franska læknaakademían hafi nýlega mælt gegn bólusetningu heilbrigðra barna sem ekki búa með fólki í áhættuhópum og finnsk yfirvöld hyggist fylgja sama fordæmi.

„Vísindalegar forsendur að baki mismununinni eru veikar. Ekkert samhengi er milli bólusetningarhlutfalls og smittíðni og ljóst að samfélagslegt ónæmi næst aldrei með hinum svonefndu bóluefnum,“ segir Þorsteinn sem telur réttara að kalla þau fyrirbyggjandi lyf.

„Þau gagnast vel fólki í áhættuhópum, en ungt og heilbrigt fólk hefur hins vegar enga þörf fyrir þau, og nokkur ungmenni hérlendis hafa þegar orðið fyrir varanlegum skaða vegna lyfjagjafarinnar. Það kemur ekki á óvart, enda er tíðni tilkynninga um alvarlegar aukaverkanir vegna þeirra allt að þúsundföld miðað við fyrri reynslu.“

Þorsteinn segist telja það ástæðulaust að Íslendingar „elti mistökin“ sem gerð eru í sumum nágrannalöndum okkar.

„Góðu heilli hefur nýr heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, ítrekað talað fyrir umburðarlyndi og lýst skýrri andstöðu sinni við hugmyndir um mismunun og útilokun fólks eftir bólusetningarstöðu, sem bendir til að hann skilji vel hvert slíkt getur leitt okkur. Ég vona að sú manneskjulega og heilbrigða lífssýn sem endurspeglast í afstöðu ráðherrans hafi yfirhöndina hér á okkar litla landi.“