„Enginn ráðherra eða þingmaður hefur gert athugasemd við það að vestrænt ríki setji neyðarlög til að brjóta friðsöm mótmæli á bak aftur. Hvað veldur?,“ spyr Þorsteinn Friðrik Halldórsson, blaðamaður Innherja, í grein á Innherja.
Þar ræðir hann um mótmælin í Kanada gegn Justin Trudeau, forsætisráðherra landsins, og furðar hann sig á þögn íslenskra ráðamanna um málið, nefnir hann sérstaklega Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, sem var dómsmálaráðherra þegar hún tjáði sig um morðið á George Floyd í Bandaríkjunum, og Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur utanríkisráðherra.
„Krafa vörubílstjóranna í Kanada er ekki fjarstæðukennd. Þeir vilja fyrst og fremst atvinnufrelsi til að sjá fyrir sér og sínum. Þeir krefjast þess að bólusetning með lyfi sem fékk markaðsleyfi á mettíma sé ekki eiginlegt skilyrði fyrir því að þeir haldi starfi, og krafan er sett fram fram nú þegar tilkoma Omicron-afbrigðsins hefur dregið allverulega úr skaðsemi faraldursins,“ segir hann.
„Um þremur vikum eftir að mótmælin hófust setti Trudeau, sem er formaður Frjálslynda flokksins og í senn aðdáandi stjórnarfarsins í Kína að eigin sögn, neyðarlög til þess að kveða mótmælin niður. Samkvæmt neyðarlögunum geta mótmælendur átt von á því að vörubílar þeirra verði gerðir upptækir og bankareikningar frystir.“
Þorsteinn furðar sig á því að enginn ráðamaður ræði þetta.
„En þrátt fyrir að harðstjórnartilburðir Trudeaus blasi við umheiminum heyrist hvorki hósti né stuna frá íslenskum ráðamönnum,“ segir hann.
„Íslenskir ráðamenn hafa sannarlega látið sig varða mannréttindamál í Norður-Ameríku. Ekki þarf að leita lengra aftur en til sumarsins 2020 þegar mótmælabylgja gekk yfir Bandaríkin í kjölfar morðsins á George Floyd. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þá sitjandi sem dómsmálaráðherra, lýsti yfir eindregnum stuðningi sínum við mótmælendur jafnvel þó að víða hefðu brotist út óeirðir sem leiddu til gífurlegs tjóns og dauðsfalla. Ráðherra hefur enn ekki fundið ástæðu til að styðja vörubílstjórana með sama hætti.“
Bætir hann við: „Ef til vill þykir málstaður þeirra ekki nógu fínn.“
Þá beinir hann orðum sínum að Þórdísi Kolbrúnu:
„Í fyrradag var flokkssystir hennar, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, í dauðafæri til að koma áhyggjum sínum, ef einhverjar eru, á framfæri við kanadísk stjórnvöld þegar hún hitti fyrir þarlendan utanríkisráðherra í München. Samkvæmt færslu ráðherra á samfélagsmiðlum snerust samræðurnar þó aðallega um vinabönd þjóðanna tveggja og „mikilvægi þess að standa saman á tímum vaxandi óvissu“. Í ljósi þess sem á undan hefur gengið hefði verið hyggilegra að sleppa færslunni.“